© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.5.2005 | 15:22 | bl
Golfmótið verður 10. júní á Hellu
Golfmóti körfuboltamanna verður haldið föstudagurinn 10.júní kl. 13:30 á Strandarvelli hjá Golfklúbbi Hellu.

Erindi í mótið eiga allir þeir sem einhvern tíma hafa komið nálægt körfubolta, sem leikmenn, dómarar, stjórnarmenn eða á einhvern annan hátt og eru að fikta við golfið.

Leiknar verða 18 holur og keppt í höggleik án forgjafar og punktakeppni þar sem gefin hámarksforgjöf verður 24 hjá körlum og 28 hjá konum.

Þetta er í áttunda sinn sem mótið fer fram og hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt, voru á milli 50 og 60 í fyrra. Allir verða ræstir út í einu svo keppendur ljúki leik á svipuðum tíma og geti því átt góða stund í golfskála að leik loknum og rifjað upp gamlar stundir.

Nánari upplýsingar og skráning er hjá Ríkharði Hrafnkelssyni mótsstjóra í síma 897-6279, netfang: rikhardur@sfs.is Skráningu lýkur kl. 22:00 fimmtudaginn 9.júní.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Evar Rós Guðmundsdóttir lék einkar vel á Bikarúrslitahelginni í Keflavík 28. febrúar - 1. mars. Eva Rós lék í tveim flokkum með Keflavík og vann hún báða leikina, með sínum 9. flokk og einnig í Stúlknaflokki með Keflavík-b, en hann samanstendur af stelpum úr 9. og 10. flokki.
Evar Rós skoraði samtals 46 stig og tók 38 fráköst í tveimur leikjum og skilaði einnig góðum tölum í öðrum tölfræðiþáttum íþróttarinnar. Þá var hún valin besti maður leiksins í báðum leikjunum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið