© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.12.2000 | 20:46 | BL
Stórsigur á Norðmönnum
Íslenska U16 landsliðið sigraði það norska í kvöld á
Norðurlandamótinu (Polar cup) í Fredriksberg, Danmörku. Lokatölurnar urðu 100-44, eftir að staðan í hálfleik var 44-16.

Eins og sést á úrslitunum var ekki um mikla keppni ad ræða og fengu allir leikmenn íslenska liðsins að spreita sig nokkud jafnt og skiptu þeir bródurlega a milli sín stigunum. Mesta spennan var um það hvort íslenska liðið mundi ná að skora 100 stig í
þessum leik.

Stigahæstir voru: Sævar 19 stig, Jón Brynjar og Þorleifur 12 og Ólafur með 11.

Frákastahæstir voru Fannar med 8 fráköst, en Kristinn og Jón Brynjar voru með 7 hvor.

Íslendingar spila næst á móti Dönum á morgun kl. 18:00 að íslenskum tíma.

Leik Finna og Svía sem hófst kl. 14 í dag er enn ekki lokið. Leik var hætt þegar 28 sekúndur voru liðnar af síðari hálfleik, þegar einn leikmaður Svía braut körfuspjaldið í hraðaupphlaupi. Þá var staðan 46-36 Finnum í vil. Ekki reyndist unnt að útvega nýtt spjald í tæka tíð og verður því síðari hálfleikurinn leikinn kl. 12:00 á morgun.

Það verður því nóg um að vera í höllinni í Frederiksberg á morgun þegar 3 1/2 leikur verða leiknir. Sem betur fer á Ísland bara að leika einn leik, gegn Dönum, sem þessa stundina eru að etja kappi við Svía.

Nánari upplýsingar um mótið er að finna á Polar cup síðu.


Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jason Dourisseau treður í leik gegn Njarðvík 2008. KR vann örugglega 103-48 í það skiptið.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið