© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.4.2005 | 17:57 | bl
Um 120 þátttakendur á Fantamóti
Körfuknattleiksmót í Fantadeildinni verður haldið í Bolungarvík á laugardag og er það fyrsta mót deildarinnar í vetur. „Við ætluðum að halda mót 2. apríl en þá var ófært yfir á suðurfirðina og mótinu því aflýst. Við vonum bara að veðurguðirnir verði okkur nú hliðhollir“, segir Karl Jónsson, einn af stjórnendum deildarinnar.

Þátttakendur koma frá Bolungarvík, Ísafirði, Bíldudal og Patreksfirði. Alls taka um 120 krakkar á aldrinum 10-11 ára þátt og hefur deildin stækkað um tæplega helming síðan í fyrra. Fantadeildin er ætluð sem samstarfsvettvangur körfuknattleiksliða á Vestfjörðum og eitt helsta markmið hennar er að ná til smærri byggðarlaga í fjórðungnum.

„Mótið um næstu helgi átti að vera á Þingeyri en fjöldi þátttakenda er svo mikill að hann mundi sprengja húsið þar utan af sér. Við þurfum að spila á tveimur völlum í einu allt mótið og því miður er bara einn völlur á Þingeyri. Við höfum ekki forsendur í dag til að setja mótið á tvo daga en í sumar munum við skoða þau mál ef deildin stækkar enn meira“, segir Karl.

Mótið hefst kl. 10 og lýkur síðdegis. Nánari upplýsingar má finna á vef Fantadeildarinnar.

Af vef BB á vestfjörðum
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Piltalandslið Íslands sem varð Norðurlandameistar í Stykkishólmi vorið 1991. Aftari röð frá vinstri: Jón Arnar Ingvarsson Haukum, Sigfús Gizurarson Haukum, Benedikt Sigurðsson KR, Hjörtur Harðarson Keflavík, Jón B. Stefánsson Keflavík, Sigurður Jónsson KR og Jón Sigurðsson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Eggert Garðarsson ÍR, Bragi Magnússon Haukum, Hermann Hauksson KR, Birgir Guðfinnsson Keflavík og Marel Guðlaugsson Grindavík. Nökkvi Már Jónsson var einnig í sigurliðinu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið