© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.4.2005 | 15:15 | bl
Undanúrslitin færð til Istanbúl
FIBA Europe tilkynnti í dag að undanúrslitakeppni FIBA Europe League hefði verið færð frá Kiev í Úkraínu til Istanbúl í Tyrklandi. Ástæðan er sú að höllin í Kiev er lokuð helgina 27.-28. apríl vegna undirbúnings fyrir sögvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.

Sögvakeppnin verður haldin í Kyiv-höllinni dagana 19. og 21. maí nk., BC Kyiv hafði tilkynnt FIBA Europe að sögvakeppnin myndi ekki hafa nein áhrif á undanúrslitakeppnina. Í gær fékk BC Kiyv hins vegar tilkynningu frá ríkisstjórn Úkraínu þess efnis að höllin yrði lokuð helgina 27.-28. apríl.

"Við erum auðvitað mjög vonsviknir yfir þessum fréttum," segir Nar Zanolin framkvæmdastjóri FIBA Europe. " Undirbúningur var á lokastigi og öllum aðilum hafði verið tilkynnt að keppnin yrði haldin í Kiev. Það jákvæða er þó að við erum mjög ánægðir með að geta í staðinn leikið í Abdi Ipecki-höllinni í Istanbúl, en hún er ein besta körfuboltahöll Evrópu og því vel við hæfi að leika undanúrslitakeppnina þar."

Þess má geta til gamans að evrópska sögvakeppnin fór fram í Abdi Ipecki-höllinni í Istanbúl í fyrra.

Upphaflega sótti Fenerbahce, heimaliðið í Istanbúl, um að halda keppnina, sem og Dynamo St. Petersburg, auk BC Kiev.

mt: Höllin góða í Istanbúl sem hýsa mun undanúrslitakeppni FIBA Europe League í ár.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leifur S. Garðarsson fullur einbeitingar í leik í Sluc Nancy og Scaligera frá Ítalíu en leikurinn fór fram á heimavelli Nancy í Frakklandi.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið