© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.7.2015 | 9:58 | Kristinn | Landslið
ÍSLAND-HOLLAND · Tveir landsleikir á Íslandi í ágúst
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta leikur tvo landsleiki gegn Hollandi hér heima í byrjun ágúst, en bæði liðin undirbúa sig fyrir EuroBasket 2015 í haust. Ísland leikur í B-riðli í Berlín á meðan Holendingar leika í C-riðli í Zagreb gegn Króatíu, Makedóníu, Georgíu, Grikklandi og Slóveníu.

Fyrri leikur liðanna fer fram í Þorlákshöfn kl. 19.15 föstudaginn 7. ágúst. Liðin æfa svo laugardag og hvílast og leika seinni leikinn sín á milli í Laugardalshöllinni sunnudaginn 9. ágúst kl. 16.00. Þetta eru síðustu landsleikir íslenska liðsins hér heima en liðið fer á tvö æfingamót síðar í ágúst fyrir brottför til Þýskalands.

Í augnablikinu eru 15 leikmenn í Hollenska hópnum en þar á meðal er fyrrum NBA-leikmaðurinn og samherji Jóns Arnórs Stefánssonar, Henk Norel, en þeir léku saman hjá CAI Zaragoza á Spáni. Einnig eru þar að minnsta kosti tveir íslandsvinir sem leikið hafa hér á landi. KR-ingurinn (2008-2009) Jason Dourisseau er í hópnum sem og Sean Cunningham sem lék með Tindastól (2010-2011) og gætu þeir verið í endanlegum leikmannahóp Hollands.

Almenn miðasala er hafin á leikina og fer hún fram á www.tix.is.

Miðaverð er 1.000 kr. fyrir 16 ára og yngri og 2.000 kr. fyrir fullorðna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð A-landsliðs karla til Sarajevo í Bosníu v/þáttöku í undanúrslitakeppni Evrópumótsins árið 1998.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið