© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
7.3.2005 | 11:28 | Óskar Ó. Jónsson
Haukar, KR og Njarðvík unnu öll tvo bikarmeistaratitla
Bikarúrslitaleikir yngri flokkanna fóru fram í Íþróttamiðstöð Grafarvogs um helgina og voru í umsjón Fjölnis. Helgin tókst mjög vel og fá Fjölnismenn sérstakar þakkir fyrir glæsilega umgjörð. Fimm félög eignuðust bikarmeistara á helginni þar af áttu Haukar, Njarðvík og KR öll tvö bikarmeistaralið og Fjölnir og Grindavík eignuðust eina bikarmeistara hvort félag.

Bæði Njarðvík og Haukar eru því þrefaldir bikarmeistarar í ár því meistaraflokkslið beggja félaga urðu einnig bikarmeistarar á dögunum. 10. og 11. flokkur Njarðvíkur fylgdi því eftir í fótspor meistaraflokksins síns og hjá Haukum voru það 10. flokkur og unglingaflokkur kvenna sem urðu bikarmeistarar um helgina. Flestar stelpurnar í unglingaflokki Hauka urðu einnig bikarmeistarar með meistaraflokknum í síðasta mánuði. Fjögur félög náðu einnig að verja titla sína í einstökum flokki, Fjölnir í unglingaflokki karla, KR í drengjaflokki, Haukar í unglingaflokki kvenna og Grindavík í 9. flokki kvenna.

Öll úrslit og tölfræði leikjanna má finna undir nýjustu úrslitum hér á KKÍ-síðunni en einnig var frétt sett inn um hvern leik og þá er ítarlegt söguyfirlit yfir bikarúrslitaleiki yngri flokkanna í gegnum tíðina undir greinum. Myndir af öllum bikarmeistaraliðunum átta eru komnar á vefinn. Myndirnar eru með frétt af viðkomandi flokk.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ríkharður Hrafnkelsson og Tim Dwyer með Íslandsbikarinn, nokkrum dögum fyrir bikarúrslitaleikinn 1983. Til vinstri er Sigurður Hjörleifsson og hægra megin er Björn Zöega
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið