© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.3.2005 | 18:44 | Óskar Ó. Jónsson
KR-ingar bikarmeistarar í drengjaflokki
KR-ingar urðu fyrstu og síðustu bikarmeistaranir á bikarúrslitaleikjahelgi yngri flokkanna, 9. flokkur félagsins vann fyrsta bikarúrslitaleikinn á laugardagsmorgninum og drengjaflokkur vann síðan heimamenn í Fjölni með 8 stigum, 82-74, í síðasta bikarúrslitaleiknum í kvöld. Fjölnir hafði frumkvæðið framan af, leiddi með 5 stigum í hálfleik, 42-37 og með þremur stigum fyrir fjórða og síðasta leikhlutann (58-55). KR-liðið vann hinsvegar fjórða leikhlutann með 11 stigum (27-16) og þar á meðal fyrstu 4 mínútur fjórða leikhlutans 15-2. Þetta er annað árið í röð sem KR verður bikarmeistari í drengjaflokki en KR vann Njarðvík 81-65 í bikarúrslitaleiknum í fyrra.

Brynjar Þór Björnsson úr KR var valinn maður leiksins en hann skoraði 30 stig, tók 10 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og varði 3 skot. Arnar Steinn Ólafsson skoraði 23 stig og tók 6 fráköst (5 í sókn), Darri Hilmarsson bætti við 14 stigum og 13 fráköstum (6 og 8 í fjórða leikhuta) og Ellert Arnarsson var með 11 stig og 5 stoðsendingar.

Árni Ragnarsson skoraði mest fyrir Fjölni eða 19 stig þrátt fyrir að missa af síðustu 5 mínútum leiksins eftir að hafa meiðst illa á öxl. Árni var fluttur á sjúkrahús líklega farinn úr axlarlið. Árni Þór Jónsson skoraði 18 stig (12 í fyrsta leikhluta), tók 6 fráköst og gaf 5 stoðsendingar, Benedikt Skúlason var með 16 stig og 10 fráköst og þá var Emil Þór Jóhannsson með 13 stig, 6 fráköst og 3 varin skot.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá forkeppni Evrópumóts landsliða í Lugano í Sviss árið 1995.  Guðjón Skúlason og Skúli Unnar Sveinsson blaðamaður Morgunblaðsins.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið