© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.1.2005 | 14:32 | bl
Fribourg mætir öðru liði frá Sviss
Benetton Fribourg Olympic sem slóg Keflavík út úr bikarkeppni Evrópu í síðustu viku mætir öðru svissnesku félagi, BC Boncourt í undanúrslitum mið- og vesturdeildar keppninnar, en leikurinn verður leikinn 16. febrúar nk.

BC Boncourt varð svissneskur meistari sl. vor, eftir sigur á Fribourg í úrslitum. Liðið er sem stendur efst í svissnesku deildinni, en Fribourg er í því sjötta. Liðin hafa mæst einu sinni í deildinni í vetur og þá sigraði Boncourt 110-92.

Í norðurdeildinni eru þrjú rússnesk félög í undanúrslitum. Dynamo Moskva mætir EURAS Ekaterinburg og Lokomotiv Rostov mætir BC Siauliai frá Litháen.

Í undanúrslitum suðurdeildarinnar eru tvö félög frá Kýpur. Keravnos Keo mætir Banvit frá Tyrklandi og Apollon Limassol mætir CSU Asesoft Ploieisti frá Rúmeníu.

Í 8-liða úrslit bikarkeppninnar komast 2 félög úr norður og tvö úr suðurdeildunum, en fjögur úr mið- og vesturdeildinni.

mt: Úr leik Keflavíkur og Fribourg í síðsutu viku. (mynd: VF-FIBA Europe)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið U18 kvenna á Norðurlandamótinu í Solna í Svíþjóð 2009.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið