S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
19.1.2005 | 9:32 | bl
Stórleikur í Keflavík
Keflavíkingar töpuðu fyrri leiknum í Sviss sl. fimmtudag 103-95 og nægir því 9 stiga sigur í lieknum á morgun til að komast áfram í 8-liða úrslit keppninnar. Lið Benetton er óárennilegt, fjöldi erlendra leikmanna prýðir liðið og aðeins einn Svisslendingur var á skýrslu í fyrri leiknum. Sá heitir Patric Ceresa og skoraði hann 4 stig á 28 mínútum í leiknum í Sviss. Stigahæstur var hins vegar Bandaríkjamaðurinn Delmonte Madison með 25 stig. Möguleikar Keflvíkinga á að komast áfram verða að teljast góðir, en eins og menn vita sækir ekkert lið gullið í greipar þeirra í Sláturhúsið við Sunnubraut. Fari svo að Keflavík komist áfram verður mótanefnd KKÍ á færa síðustu umferðina í Intersport-deildinni, sem vera átti 3. mars, sem og upphaf úrslitakeppninnar. Leikurinn hefst kl. 20:30 annað kvöld í Keflavík. KKÍ hvetur alla körfboltaáhugamenn til að fjölmenna og upplifa körfubolta eins og hann gerist hvað bestur í Evrópu. mt: Nick Bradford hefur farið á kostum í leikjum Keflavíkur í Evrópukeppninni í vetur. (VF-mynd af vef FIBA-Europe) |