© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
17.1.2005 | 14:48 | bl
Serbar duttu í lukkupottinn
Serbar og Svartfellingar, gestgjafar úrslitakeppni Evrópumótsins sem fram fer síðar á þessu ári, telja sig hafa lent í "léttasta" riðlinum, en drátturinn fór fram í Belgrad um helgina.

Serbar lentu í D-riðli með Spánverjum og Lettum og sigurvegurum úr sérstakri forkeppni þjóða sem ekki komust beint í úrslitin með því að verða í 1. eða 2. sæti í sínum riðli undankeppninnar.

Riðlarnir í Eurobasket 2005 verða sem hér segir:

A-riðill: Úkraína, Rússland, Þýskaland, Ítalía.
B-riðill: Tyrkland, Króatía, Litháen, Búlgaría.
C-riðill: Slóvenía, Frakkland, Grikkland, Bosnía&Herzegóvína.
D-riðill: Serbía&Svartfjallaland, Spánn, Lettland, þjóð úr aukakeppni.

Á þessu má sjá að vart má á milli sjá hvort A- eða C-riðlar teljist dauðarriðillinn í keppninni, en ljóst er að hart verður barist í öllum riðlinum og óvænt úrslit munu áreiðanlega líta dagsins ljós.

Ísrael og Ungverjaland eru talin líklegust til að berjast um sigurinn í aukakeppninni, en auk þess taka Svíþjóð, Portúgal. Belgía, Tékkland, Pólland, Holland og Eistland.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jónatan Bow og Patrick Releford kljást í leik Hauka og UMFN í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ 1989.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið