© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.12.2004 | 10:05 | bl
Kvennalandsliðið til Englands
Þjálfarar kvennalandsliðsins, Ívar Ásgrímsson og Henning Henningsson, hafa valið 16 manna æfingahóp fyrir æfingaferð kvennalandsliðsins til Englands milli jóla og nýárs.

Liðið er mjög ungt að árum og eru t.d. fimm 16 ára leikmenn í hópnum. Farið verður með 12 leikmenn til Englands og mun sá hópur verða valinn á æfingu þann 22. des. og verður hann tilkynntur á heimasíðu KKÍ þann 23. des.

Haldið verður að stað til Englands þann 27. des. og komið heim þann 30 des. Leiknir verða þrír leikir á þessum fjórum dögum, þann 28. og 29. des við landslið Englands og þann 30 des. við úrvalslið frá London.

Íslenska kvennalandsliðið er að undirbúa sig fyrir smáþjóðaleikana sem verða haldnir í Andorra í lok maí 2005.

Eftirtaldir leikmenn voru valdir
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík
Rannveig Randversdóttir, Keflavík
María Ben Erlingsdóttir, Keflavík
Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík
Svava Ó Stefánsdóttir, Keflavík
Bára Bragadóttir, Keflavík
Helga Jónasdóttir, Njarðvík
Ingibjörg E Vilbergsdóttir, Njarðvík
Erla Þorsteinsdóttir, Grindavík
Ólöf Helga Pálsdóttir, Grindavík
Helena Sverrisdóttir, Haukar
Pálína M Gunnlaugsdóttir, Haukar
Alda Leif Jónsdóttir, ÍS
Signý Hermansdóttir, ÍS
Þórunn Bjarnadóttir, ÍS
Hildur Sigurðardóttir, Jamtland, Svíþjóð

Æfingar munu hefjast strax eftir síðasta leik fyrir jólafrí og munu æfingar verða á eftirtöldum tímum.

Sunnud. 19. des. 18.00 – 20.00 Hlíðaskóla, Keflavík
Mánud. 20. des. 17.30 – 19.00 Ásvellir, Hafnarfirði
Þriðjud. 21. des. Keflavík
Miðvikud. 22. des. 20.00 – 22.00 Njarðvík
Föstud. 24. des. 11.00 – 12.30 Ásvellir, Hafnarfirði
Sunnud. 26. des. 12.00 – 14.00 Ásvellir, Hafnarfirði
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá keppni drengjalandsliðs Íslands í úrslitakeppni Evrópukeppninnar í Tyrklandi árið 1993.  Fremst Friðrik Stefánsson, Brynjar Bergmann og Axel Nikulásson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið