© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.11.2000 | 19:00 | ÓR
Belgar sigruðu Ísland 96-61
Leikur Íslands og Belgíu í undanúrslitariðli EM í Roselare í Belgíu er lokið með sigri Belga 96-61. Ísland hafði yfir eftir fyrsta leikhluta, en Belgar höfðu náð 5 stiga forskoti þegar blásið var til leikhlés. Síðari hálfleikur reyndist íslenska liðinu erfiður og Belgar unnu sanngjarnan sigur.

Staðan eftir fyrsta leikhluta var 25-28 fyrir Ísland, en Ísland var einnig yfir um miðjan leikhlutann 13-15.

Logi Gunnarsson átti mjög góðan leik í 2. leikhluta og í hálfleik í Roselare var staðan 38-33 fyrir Belgíu. Íslenska liðið hefur leikið mjög vel í fyrri hálfleik og komið Belgum í opna skjöldu. Belgarnir komust yfir rétt fyrir hlé, en Ísland hafði þá haft forystu frá því í fyrsta leikhluta. Eric Struelens, miðherji Real Madrid, hefur verið gríðarlega sterkur í teignum, en Friðrik Stefánsson hefur leikið mjög góða vörn gegn honum.

Bakslag kom í leik íslenska liðsins í þriðja leikhluta og Belgar fóru að hitta betur og byggðu upp forskot.

Í fjórða leikhluta bættu Belgar við forskot sitt og unnu sanngjarnan sigur 96-61.

Frábær umgjörð er um leikinn og stemning góð meðal 2000 áhorfenda.

Stig Íslands: Logi Gunnarsson 16, Ólafur Jón Ormsson 11, Herbert Arnarson 10, Helgi Jónas Guðfinnsson 10, Friðrik Stefánsson 5, Jón Arnór Stefánsson 4, Páll Axel Vilbergsson 3 og Birgir Örn Birgisson 2.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson, Sigmundur Már Herbertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson taka fund fyrir bikarleik Grindavíkur og Snæfells þann 26. nóvember 2006, leik sem jafnframt var 1000. KKÍ leikur Rögnvaldar á ferlinum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið