© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.11.2004 | 14:06 | bl
Leikið í Vík, Eyjum og Egilsstöðum
Um helgina verða yngri flokkar í aðalhlutverki í mótahaldi KKÍ þótt einnig verði leikið í meistaraflokki karla og kvenna. Alls verða haldin 15 fjölliðamót yngri flokka um helgina, þar af nokkur á stöðum þar sem slík mót eru ekki haldin á hverjum degi.

Fyrst fjölliðamót sögunnar sem haldið er í Vík í Mýrdal verður að veruleika þegar 2. umferð í 10. flokki kvenna C-riðill fer þar fram á morgun. Einnig verða mót á Egilsstöðum og í Vestmannaeyjum, en á þessum stöðum eru slík mót sjaldséð.

Auk áður greindra staða má geta þess að alls verða 5 mótanna 15 haldin á suðurlandi, því auk mótanna í Eyjum og í Vík, verða mót á Flúðum, í Hveragerði og í nýja Iðu-húsinu á Selfossi.

Fyrir norðan verða mót á Akureyri, Sauðárkróki og Hvammstanga og í Reykjanesbæ verða bæði mót í Keflavík og Njarðvík. Á höfuðborgarsvæðinu verða mót hjá Fjölni í Rimaskóla í Grafarvogi, hjá KR-ingum í DHL-höllinni í vesturbænum, í Hagaskóla, sem einnig er í vesturbænum, en það mót verður í umsjá Ármanns/Þróttar. Þá verður mót hjá Haukum á Ásvöllum í Hafnarfirði.

Ekkert verður leikið í Intersport-deildinni um helgina eða í 1. deild kvenna. Í 1. deild karla eru þó 4 leikir á dagskrá og einnig verður leikið í 2. deild karla og kvenna, sem og í unglingaflokki karla og kvenna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Bekkjarlið 5. b í Fellaskóla sigraði í fyrsta Landsbankamóti ÍR í minnibolta 1983, en mótið var milli 5. bekkja í Breiðholti. Frá vinstri, Kjartan G. Björnsson, Grétar V. Grétarsson, Hermann Hauksson, Börkur Jakobsson, Gunnar Þór Arnarson og Rúnar Þ. Guðmundsson. Fyrir aftan stendur þjálfari drengjanna og íþróttakennari, Sigvaldi Ingimundarson. Sem kunnugt er varð einn þessara drengja, Hermann Hauksson; landsliðsmaður í körfubolta.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið