© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.11.2004 | 12:00 | bl
Eining í Evrópu - Sögulegt samkomulag staðreynd
FIBA Europe og ULEB (Samtök körfuknattleiksdeilda í Evrópu) hafa loks náð samkomulagi um fyrirkomulag félagsliðakeppna í körfuknattleik í Evrópu. Þar með er lokið fjögurra ára tímabili óeiningar í Evrópukeppnunum þar sem báðir aðilar hafa staðið fyrir mótahaldi á þessum vettvangi.

Allar Evrópukeppnir verða hér eftir undir merkjum FIBA-Europe. Engar breytingar verða á fyrirkomulagi Evrópukeppnanna á yfirstandi tímabili, en á því næsta, 2005-2006, mun ULEB í nafni FIBA-Europe sjá um tvær helstu félagsliðakeppnirnar sem í munu leika 48 lið frá 16 löndum. Aðrar Evrópukeppnir verða beint undir FIBA-Europe.

Mikil ánægja er með samkomulagið innan FIBA-Europe og að takist hafi að sameina keppni í álfunni á ný undir einum hatti.
Skrifað var undir samkomulagið í höfuðstöðvum FIBA í Genf í Sviss í gær. Myndin var tekin við það tækifæri.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslandsmeistarar Hauka 2009
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið