© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.11.2004 | 16:30 | bl
FIBA heldur baráttunni gegn lyfjamisnotkun áfram
Alþjóðakörfuknattleikssambandið, FIBA, hefur gefið út bækling í samvinnu við Alþjóðalyfjaeftirlitsstofunina, WADA. Bæklingnum, sem er á ensku, frönsku og spænsku, verður dreift til allra 212 aðildarlanda FIBA á næstunni.

Með bæklingnum, sem einkum á að höfða til ungs fólks, vill FIBA vekja fólk til umhugsunar um lyfjamisferli, þær reglur sem eru í gildi og hvaða afleiðingar það hefur í för með sér að brjóta þær. Sérstaklega verður tekið á notkun fæðubótarefna í bæklingnum og þeim hættum sem kunna að leynast í notkun þeirra. Fjölmörg dæmi eru um það að slík efni, sem eru á almennum markaði, innihaldi ólögleg efni og leikmenn hafi ekki hugmynd um að þeir eru að brjóta lög og reglur íþróttahreyfingarinnar með neyslu þeirra.

Þekktir leikmenn á borð við Yao Ming, Tony Parker og Dikembe Motumbo styðja átakið og aðstoða við kynningu og útgáfu bæklingsins.

Bæklingurinn verður sendur áfram til aðildarfélaga KKÍ um leið og hann berst frá FIBA. Hægt er að sækja bæklinginn í pdf-formi hér.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson tekur við viðurkenningu frá Hannesi Jónssyni formanni KKÍ í tilefni af 1000. leiknum sem Kristinn dæmdi á mótum á vegum KKÍ. Kristinn er aðeins þriðji dómarinn til að ná þessum merka áfanga en kollegar hans Jón Otti Ólafsson og Rögnvaldur Hreiðarsson hafa einnig náð að kljúfa 1.000 leikja múrinn.
Leikur nr. 1.000 var viðureign Vals og Reynis frá Sandgerði í 1. deild karla 4. janúar 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið