© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.9.2004 | 13:34 | rg
15 þjóðir hafa tryggt sig á EM 2005
Undankeppni EM 2005 í Serbíu og Svartfjallalandi, A deild lauk nú um helgina. Þá eru 15 þjóðir búnar að tryggja sér þátttöku í lokakeppninni en síðasta þjóðin tryggir sig 13. september á næsta ári en keppnin mun fara fram dagana 16.-25. september. Fimm þjóðir tóku ekki þátt í undankeppninni núna í september, en það voru þær þjóðir sem tóku þátt á Ólympíuleikunum í Aþenu, Grikkir, Serbar, Ítalir, Litháar og Spánverjar. Tvær efstu þjóðir í hverjum riðli undankeppninnar núna komast svo áfram en það eru Rússar, Króatar, Lettar, Búlgarir, Þjóðverjar, Úkraína, Frakkar, Slóvenar, Tyrkir og Bosníumenn. Þær níu þjóðir sem ekki komust áfram núna leika í þremur riðlum næsta haust um þetta eina sæti sem eftir á að úthluta og einnig um áframhaldandi þátttöku rétt í A deild EM. Þær þjóðir sem komust í lokakeppnina síðast en hafa ekki enn tryggt sér þátttökurétt núna eru Svíar og Ísraelar, Búlgarar koma í stað a.m.k. annarar þjóðarinnar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Ársþingi KKÍ á Flúðum 1994
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið