© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
14.9.2004 | 15:19 | bl
Leikið við Rúmena á sunnudag
Íslenska landsliðið mun leika gegn Rúmeníu sunnudaginn 19. september nk. Í Evrópukeppninni B-deild.Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu í Keflavík kl. 16:00. Auk þess verður bein útsending frá leiknum í Sjónvarpinu.

Sigurður Ingimundarson landsliðsþjálfari hefur verið að vinna með leikmannahóp undanfarna mánuði, en undirbúningur fyrir Evrópukeppnina hefur staðið síðan í vor. Leikmannahópinn skipuðu eftirtaldir leikmenn í upphafi:

Arnar Freyr Jónsson – Keflavík
Eiríkur Önundarson – ÍR
Fannar Ólafsson – Ase Dukas (Gri.)
Helgi Magnússon – Catawba
Hlynur Bæringsson – Snæfell
Jakob Sigurðsson – Birmingham SU
Jón N. Hafsteinsson – Keflavík
Jón Arnór Stefánsson – Dynamo St. Petersburg
Magnús Þór Gunnarsson – Keflavík
Páll Kristinsson – Njarðvík
Páll Axel Vilbergsson – Grindavík
Sigurður Þorvaldsson – Snæfell
Lárus Jónsson - KR
Friðrik E. Stefánsson – Njarðvík
Pavel Ermolinski – Malaga
Mirko Virijevic – Haukar
Pálmi F. Sigurgeirsson – Snæfell
Morten Þór Szmiedowicz - Grindavík

Nokkrir leikmenn gáfu ekki kost á sér í landsliðsverkefnin á árinu vegna meiðsla/veikinda:
Logi Gunnarsson - Giessen 46ers – meiddur í öxl er rétt nýbyrjaður að æfa að nýju.
Brenton Birmingham – Njarðvík - hefur átt við þráláð meiðsli að stríða í baki allt undirbúningstímabilið.
Damon Johnson er rétt að stíga upp eftir uppskurð en hefur ekki æft í nokkra mánuði.

Sigurður Ingimundarson mun tilkynna lið Íslands í leiknum gegn Rúmeníu á blaðamannafundi fimmtudaginn 16. september nk.

mt: Landsliðið sem lék gegn Dönum í Århus á föstudaginn var. Á myndina vantar Fannar Ólafsson og Hlyn Bæringsson.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Frá lokaathöfn leikanna.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið