© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.9.2004 | 10:52 | bl
Kristinn dæmir í A-deild Evrópukeppni landsliða
Kristinn Óskarsson körfuknattleiksdómari mun dæma leik Belga og Ungverja í A-deild Evrópukeppni landsliða þann 18. september nk. en leikurinn fer fram í Charleroi í Belgíu.

Meðdómarar Kristin verða þeir Nikolaos Mpotitsis frá Svíþjóð og Guerrino Cerebuch frá Ítalíu, en leikurinn verður dæmdur í þriggja manna kerfi eins og allir leikir í A-deildinni.

Hér er um viðbótartilnenfingu að ræða því fyrir á Kristinn að dæma leik Íra og Svisslendinga í B-deildinni í Dublin þann 15. september.

Hinn íslenski FIBA-dómarinn, Sigmundur Már Herbertsson og íslenski eftirlitsmaðurinn, Pétur Hrafn Sigurðsson fengu einnig úthlutað verkefnum nú í september.

Sigmundur Már Herbertsson fer til Noregs þann 22. september og dæmir þar leik Norðmanna og Bosníu Hersegovinu í B-deild Evrópukeppni kvenna. Meðdómari han er Jonas Bille frá Danmörku sem dæmdi einmitt í Svíþjóð á Norðurlandamóti kvenna og eftirlitsmaður er Örjan Engberg frá Svíþjóð sem hefur séð um dómaramál á Scania Cup í mörg ár.

Pétur Hrafn Sigurðsson fyrrverandi framkvæmdastjóri KKÍ og eftirlitsdómari fer til Noregs þremur dögum á eftir Sigmundi og hefur umsjón með leik Norðmanna og Möltubúa í sömu keppni og Sigmundur dæmir í. Íslenska kvennalandsliðið hefur einmitt leikið gegn báðum þessum þjóðum í sumar og sigrað. Dómarar leiksins verða þau Karolina Andersson frá Finnlandi og Edward McKinley frá Skotlandi.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leifur Garðarsson brosir við myndavélinni á meðan félagi hans undirritar leikskýrsluna að loknum leik í Keflavík.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið