© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.8.2004 | 16:35 | óój
Unnu sætan sigur á Austurríki
Karlalandsliðið vann sætan sigur á Austurríki, 74-71, í öðrum leik sínum á Pannon-æfingamótinu í Ungverjalandi í dag. Austurríkismenn leiddu mestan hluta leiksins og höfðu meðal annars sjö stiga forskot í hálfleik, 37-45 og fjögurra stiga forskot fyrir síðasta leikhlutann, 58-62. Íslensku strákarnir komu sterkir inn í lokin og unnu góðan sigur eftir slæmt tap í fyrsta leiknum gegn Póllandi. Jón Nordal Hafsteinsson var stigahæstur með 19 stig á þeim 26 mínútum sem hann spilaði.

Austurríkismenn höfðu fjögurra stiga forskot eftir fyrsta leikhluta, 22-26, leiddu með sjö stigum í hálfleik, 37-45, og íslenska liðið var fjórum stigum undir fyrir síðasta leikhlutann, 58-62, en hann unnu íslensku strákarnir með sjö stigum, 16-9, og hreinlega lokuðu vörninni. Íslensku strákarnir skoruðu síðan átta síðustu stigin í leiknum og komust fyrst yfir í stöðunni 72-71.

Jón Nordal Hafsteinsson átti frábæra innkomu af bekknum og skoraði 19 stig á aðeins 26 mínútum. Hann hitti úr 8 af 9 skotum sínum og austurríska liðið lenti í vandræðum með hann í vörn og sókn. Þá bætti félagi hans og jafnaldri úr Keflavíkurliðinu, Magnús Þór Gunnarsson við 17 stigum og þeir félagar voru því með 36 stig saman í þessum leik.

Stig íslenska liðsins í leiknum:
Jón Nordal Hafsteinsson 19 (hitti úr 8 af 9 skotum)
Magnús Þór Gunnarsson 17
Jakob Sigurðarson 13
Friðrik Stefánsson 9
Hlynur Bæringsson 7
Páll Kristinsson 4
Eiríkur Önundarson 2
Páll Axel Vilbergsson 2
Fannar Ólafsson 1

Íslenska liðið lék í annað sinn á fjórum dögum við Austurríkismennina en þjóðirnar spiluðu vináttulandsleik á miðvikudagskvöldið og íslenska liðið tapaði þeim leik með fimmtán stigum, 81-96. Það var því frábært að sjá strákanna koma til baka í dag og vinna góðan sigur.

Íslenska liðið spilar þrjá leiki í mótinu, í gær tapaði liðið með 23 stigum fyrir Póllandi, 85-110, og á morgun, sunnudag, mætir íslenska liðið heimamönnum, Ungverjum í lokaleik sínum. Íslenska liðið lék æfingaleik við Austurríki á miðvikudagskvöldið og tapaði þeim leik með fimmtán stigum, 81-96.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik Hauka og UMFN í úrslitakeppni íslandsmótsins í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði árið 1985. Miklar deilur urðu um lokakörfu leiksins.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið