© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.8.2004 | 18:51 | óój
Fimmtán stiga tap fyrir Austurríki í kvöld
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði með 15 stigum fyrir Austurríki, 81-96 í vináttulandsleik sem fram fór í St. Pölten sem er í um 60 km fjarlægð frá Vínarborg. Þetta var fyrsti leikurinn á fjórum í æfingaferð landsliðsins sem verður framhaldið á fjögurra þjóða móti í Ungverjalandi.

Austurríki hafði 11 stiga forskot eftir þriðja leikhluta, 63-52 og leiddi með sjö stigum í hállfeik, 40-33. Íslenska liðið byrjaði leikinn ágætlega en staðan var 21-21 eftir fyrsta leikhluta. Liðið missti Austurríkismennina frá sér í seinni hálfleik, náði reyndar að minnka muninn niður í sex stig en nær komust þeir ekki og munurinn í lokin var fimmtán stig. Íslenska liðið lenti í vandræðum undir körfunni og gekk einnig illa að eiga við góða hittni austurríska liðsins.

Páll Axel Vilbergsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 19 stig, Sigurður Þorvaldsson gerði 16 stig og Jakob Sigurðarson kom síðan næstur með 13 stig. Þá gerður þeir Magnús Þór Gunnarsson og Friðrik Stefánsson 9 stig hvor og Hlynur Bæringsson var með 8 stig þar af 7 þeirra í fyrri hálfleik.

Báðar þjóðirnar eru að undirbúa sig fyrir leiki á B-deild Evrópumótsins í næsta mánuði, en sem kunnugt er mæta Íslendingar Dönum í A-riðli keppninnar í Århus 10. september og Rúmenum í Keflavík þann 19. september. Austurríki er í C-riðli B-deildarinnar ásamt Albaníu, Kýpur og Hvíta Rússlandi.
Frá Austurríki heldur liðið til Ungverjalands til þátttöku í fjögurra landa móti. Fyrsti leikurinn í mótinu er á föstudag gegn Póllandi, á laugardag mætum við Austurríki og á sunnudag mætir íslenska liðið heimamönnum, Ungverjum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá forkeppni Evrópumóts landsliða í Lugano í Sviss árið 1995.  Guðjón Skúlason og Skúli Unnar Sveinsson blaðamaður Morgunblaðsins.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið