© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.8.2004 | 0:01 | HSJ
Ísland vann England á EM U-16 drengja
Í dag unnu íslensku strákarnir Englendinga með 65 stigum gegn 53 í EM keppni b-deildar U16ára. Með sigrinum eru strákarnir hársbreidd frá því að tryggja sér sæti i A-deild Evrópukeppninnar. Þar sem okkar menn í Englandi hafa ekki komist í netsamband þá kemur þessi frétt frekar seint inn og biðumst við velviðringar á því.
Strákarnir voru í basli með enska liðið í fyrri hálfleik en þeir eru með mjög hávaxið lið og réð það íslenska ekkert við þá inn í teig. Staðan í hálfleik var 23-31 fyrir England. Benedikt Guðmundsson þjálfari strákanna hefur greinilega lesið vel yfir strákunum því seinni hálfleikur var algjörlega eign Íslands en vörnin small þá saman og einnig unnu strákanrir vel á 2-3 svæðisvörn Englendinga. Lokatölur voru 65-53 fyrir Ísland.

Tölfræði leiksins

Á morgunn kl.13:30 að okkar tíma fer fram lokaleikur strákanna á mótinu gegn Hollendingum. Ef sá leikur vinnst munu strákarnir tryggja sér sæti í A-deild Evrópu sem yrði með stærri sigrum okkar í alþjóða körfubolta.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Svava Stefánsdóttir, leikmaður Keflavíkur, sækir hér að körfu Grindvíkinga í árlegum Meistaraleik KKÍ. Svava skoraði 17 stig þegar Keflavík vann með fimm stigum 73-68.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið