© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.8.2004 | 19:26 | hbh
Stórt tap gegn Svíum
Sænsku stelpurnar byrjuðu leikinn á að hitta nánast úr öllum skotum gegn 2-3 svæðisvörn íslenska liðsins. Þær komust í 11-2 strax í upphafi með 3 þriggja stiga skotum og einu tveggja stiga skoti! Hittu úr fjórum fyrstu skotunum! Fyrsti fjórðungur endaði svo á því að Svíar skoruðu flautukörfu rétt innan miðju og leiddu 34-12 eftir fyrsta fjórðung. Annar fjórðungur var litlu skárri hjá íslenska liðinu og staðan í hálfleik 51-25 fyrir Svía.
Sænska liðið hélt síðan uppteknum hætti í 3 fjórðungi og leiddi eftir hann 76-41, íslenska vörnin sýndi þó smá batamerki og barátta íslensku stelpnanna fór vaxandi. Í lokafjórðungnum fóru stelpurnar að syna hvað þær geta og skoruðu meðal annars 11 stig í röð og 18 stig gegn 7 stigum Svía, um miðbik hálfleiksins var staðan orðin 85-59 fyrir Svía. Íslensku stelpurnar unnu síðasta fjórðunginn 23-25, en lokatölur leiksins urðu 99-66 fyrir Svía.

Ívar Ásgrímsson þjálfari var ósáttur við tapið: "Við komum ekki tilbúin í leikinn á meðan Svíarnir mættu brjálaðar og hittu úr öllum sínum skotam. Við lögðum áherslu á stoppa þær inn í teignum en þær hittu mjög vel fyrir utan 3ja stiga línunni. Seinni hálfeikurinn var mun betri en sá fyrri. Nú er bara að hlaða batteríin og sigra Dani á morgun og ná upp sigurviljanum á ný!"

Signý leiddi hópinn með 18 stig, Helena 15 (13-13 í vítum!), Alda Leif og Erla Reynis með 7 hvor, Birna og Erla Þorsteins með 5 hvor Sólveig 3 og María Ben 2.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jóhann Árni Ólafsson, bestu ungi leikmaður Iceland Express deildarinnar 2006-2007 og leikmaður Njarðvíkur sækir að körfu Fjölnis í úrslitaleik unglingaflokks karla í apríl 2007.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið