© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.8.2004 | 19:11 | rg
16 ára landslið drengja til Brighton
16 ára landslið drengja hélt til Englands í morgun og leikur þar 9 leiki í B-deild Evrópukeppninnar. Efsta liðið kemst í A-deild.
Leikið verður í Brighton í Englandi. Annar riðill í B-deild verður leikinn á sama tíma í Valiko Tarnovo í Búlgaríu.

Þessir drengir urðu Norðurlandameistarar í maí á Norðurlandamótinu í Svíþjóð. Þar unnu þeir Svía í úrslitaleik 86-55 en Svíar eru einmitt með íslenska liðinu í riðli í Englandi, eins og Finnar en íslensku strákarnir unnu þann leik 68-64.

Norðurlandamótið var fyrsta verkefni þessa hóps en 16 ára strákar hafa tekið þátt í fjölmörgum Evrópumótum. Besti árangur liðsins var 1993 þegar ’76 árgangurinn komst í úrslitakeppnina í Tyrklandi og varð í 9. sæti.

Liðið er búið að undirbúa sig vel og t.a.m. eyddu þeir Verslunarmannahelginni í sumarbústað við Laugarvatn þar sem þeir efldu samkenndina og æfðu.

Hópurinn sem heldur utan er skipaður eftirfarandi leikmönnum:
Nafn Félag U16 leikir
Brynjar Þór Björnsson KR 14
Hafþór Björnsson Breiðablik 5
Böðvar Björnsson ÍA 0
Hjörtur H. Einarsson Njarðvík 5
Þórir Guðmundsson KFÍ 5
Gústaf Gústafsson Valur 9
Hörður Hreiðarsson Valur 5
Emil Þór Jóhannesson Fjölnir 5
Þröstur Leó Jóhannsson Keflavík 5
Páll H. Kristinsson Keflavík 5
Sigurður Þorsteinsson KFÍ 5
Hörður Axel Vilhjálmsson Fjölnir 5

Þjálfari er Benedikt Guðmundsson 897-8311
Fararstjóri er Björn M. Björgvinsson 897-0870
Með í för er Sigmundur Már Herbertsson dómari

Dagskrá liðsins í Englandi:
6. ágúst kl 12 (ísl tími) Ungverjaland
7. ágúst kl 11 Svíþjóð
8. ágúst kl 11 Austurríki
9. ágúst kl 19 Írland
10. ágúst kl 13 Finnland
12. ágúst kl 15 Makedónía
13. ágúst kl 17 Tékkland
14. ágúst kl 17 England
15. ágúst kl 13:30 Holland

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn U16 liðs karla liggja eins og hráviði út um allt gólf fyrir æfingaleik gegn U18 liði karla vorið 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið