© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.11.2000 | 22:08 | BL
ÍR stal sigrinum í Seljaskóla
Keflavíkingar töpuðu sínum fyrsta leik í Epson-deildinni í kvöld er þeir mættu ÍR í Seljaskóla. Eiríkur Önundarson skoraði sigurkörfu ÍR úr þriggja stiga skoti þegar 10 sekúndur voru eftir af leiknum og var það í eina skiptið sem ÍR var yfir í leiknum. Lokatölur 89-88.

Njarðvíkingar unnu sigur á Skallagrímsmönnum í Njarðvík 82-73. Á Sauðárkróki tóku heimamenn í Tindastól á móti Hamarsmönnum og sigruðu þá 81-63. Í Grafarvogi töpuðu Valsmenn fyrir Haukum 62-81.

Athyglisverð tölfræði úr leikjum kvöldsins:
Cedric Holmes ÍR skoraði 23 stig og tók 23 fráköst gegn Keflavík. Hann var einnig með 73% nýtingu í skotum sínum.
Calvin Davis Keflavík var með 34 stig og 9 fráköst í leiknum gegn ÍR.
Brenton Birmingham UMFN skoraði 28 stig, hirti 16 fráköst, var með 7 stoðsendingar og 90% nýtingu í 2ja stiga skotum gegn Skallagrím.
Warren Peeples Skallagrím skoraði 24 stig, tók 15 fráköst og gaf 9 stoðsendingar gegn UMFN og því nálægt því að vera með þrefalda tvennu.
Pálmi Sævarsson Skallagrím tók alls 14 fráköst gegn UMFN, þar af 10 sóknarfráköst.

Leikir KR - KFÍ og UMFG - Þórs Ak., sem frestað var í dag, hafa verðir settir á annað kvöld (föstudagskvöld) kl. 20.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik Hauka og Þórs Akureyri í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði keppnistímabilið 1983-1984.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið