© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.7.2004 | 12:41 | rg
Ungir körfuknattleiksmenn á leið til Bandaríkjanna
8 ungir körfuknattleiksmenn úr Reykjavík eru á leið á Borgarleika unglinga í Cleveland á morgun.
Borgarleikar unglinga (International Children´s games) hafa verið haldnir um víða veröld í 35 ár. Leikarnir eru keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum fyrir ungmenni á aldrinum 12-15 ára. Samtökin sem standa að þessum leikum eru viðurkennd af Alþjóða Ólympíunefndinni frá 1990. ÍBR hefur með stuðningi frá ÍTR sent þátttakendur á Borgarleika frá árinu 2001 og er þetta er í fyrsta skipti sem körfuknattleiksmenn eru sendir til leiks.

Verkefnið sem körfuknattleiksmennirnir fara í er International children games, sem haldnir verða í Cleveland í Ohio fylki í Bandaríkjunum.

Stjórn ÍBR hefur ákveðið að senda þátttakendur fædda 1989 í eftirfarandi íþróttagreinum á Borgarleikana 2004:

Knattspyrnu (8 stelpur)
Körfuknattleik (8 strákar)
Frjálsum íþróttum (4 stelpur og 4 strákar)

Með íþróttamönnunum fara þrír þjálfarar og 3 fararstjórar.

Nafnalisti körfuknattleiksþáttakenda:

Anton Örn Helgason ÍR
Arnór Sigurgeir Þrastarson Valur
Jens Gísli Heiðarsson Fjölnir
Páll Fannar Helgason Valur
Pétur Þór Jakobsson KR
Sindri Már Kárason Fjölnir
Snorri Páll Sigurðarson KR
Þorvaldur Hauksson ÍR

Þjálfari er Ingi Þór Steinþórsson.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Björn Leósson, dómari, tilbúinn með knöttinn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið