© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.6.2015 | 11:00 | Kristinn | Landslið
Bryndís og Helena á sínum fjórðu Smáþjóðaleikum
Bryndís Guðmundsdóttir og Helena Sverrisdóttir eru báðar í landsliðshópi Ívars Ásgrímssonar á Smáþjóðaleikunum sem lýkur í dag á Íslandi.

Þá leika stelpurnar til úrslita gegn Lúxemborg og hefst leikurinn kl. 13.30. Frítt er inn á leikinn og áhorfendur og körfuknattleiksaðdáendur hvattir til að fjölmenna í Höllina í dag og styðja við bakið á liðunum okkar.

Bryndís og Helena eru báðar að taka þátt í sínum fjórðu Smáþjóðaleikum á ferlinum en þær hafa verið með á síðustu þremur leikum þar sem íslenska kvennalandsliðið hefur fengið að vera með eða í Andorra 2005, á Kýpur 2009 og í Lúxemborg 2013.

Þetta verður í fyrsta sinn sem aðeins tvö ár líða á milli Smáþjóðaleika hjá stelpunum en ekki var keppt í kvennakörfubolta á Smáþjóðaleikunum í Mónakó 2007 og á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein 2011.

Bryndís og Helena eru báðar fæddar árið 1988 og því enn bara 27 ára gamlar. Þær ættu því að geta tekið þátt á fleiri Smáþjóðaleikum á ferlinum.

Bryndís og Helena komst með í fámennan hóp með því að taka þátt í þessum Smáþjóðaleikum en þær sem hafa einnig verið með á fjórum Smáþjóðaleikum eru þær Helga Þorvaldsdóttir, Anna María Sveinsdóttir, Birna Valgarðsdóttir, Björg Hafsteinsdóttir, Guðbjörg Norðfjörð og Hanna Björg Kjartansdóttir.

Aðeins einn leikamaður íslenska liðsins á leikunum ár er með í þriðja skiptið en það er Petrúnella Skúladóttir en hún var líka með á Kýpur 2009 og í Lúxemborg 2013.

Allir leikmenn íslenska liðsins hafa tekið þátt í Smáþjóðaleikum áður nema þær Guðbjörg Sverrisdóttir og Margrét Rósa Hálfdanardóttir.

Smáþjóðaleikareynsla íslenska hópsins 2015:
Helena Sverrisdóttir - 3 (2005, 2009, 2013)
Bryndís Guðmundsdóttir - 3 (2005, 2009, 2013)
Petrúnella Skúladóttir - 2 (2009, 2013)
Ragna Margrét Brynjarsdóttir - 1  (2009)
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir - 1  (2009)
Gunnhildur Gunnarsdóttir - 1 (2013)
Ingunn Embla Kristínardóttir - 1 (2013)
Hildur Björg Kjartansdóttir - 1 (2013)
Pálína Gunnlaugsdóttir - 1 (2013)
Sara Rún Hinriksdóttir - 1 (2013)
Guðbjörg Sverrisdóttir - Nýliði á Smáþjóðaleikum
Margrét Rósa Hálfdanardóttir - Nýliði á Smáþjóðaleikum
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá 40 ára afmælishófi KKÍ 24. febrúar 2001. Frá vinstri Guðmundur Árnason; Ingi Þorsteinsson og óþekktur veislugestur.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið