© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.6.2015 | 15:53 | Stefán | Landslið
Evrópubikarinn til sýnis í Höllinni - almenningi gefst kostur á að fá mynd


Ísland er þriðji viðkomustaður Evrópubikarins núna í sumar en hann er á ferðalagi um álfuna. Evrópubikarinn sem verður afhentur sigurvegara Eurobasket núna í haust er staddur hér á landi og var að því tilefni haldinn blaðamannafundur í Laugardalshöllinn. Bikarinn var til sýnis fyrir fjölmiðlafólk en ásamt bikarnum er hér á landi lukkudýr leikanna, Frenkie the Fireball.

Hannes Jónsson, formaður KKÍ, fór yfir stöðuna á undirbúningnum fyrir Evrópukeppnina og er fyrsti áfangi hans í gangi núna en það eru Smáþjóðaleikarnir. Ásamt Hannesi tóku til máls þeir Illugi Gunnarsson, ráðherra íþróttamála, og Kolbeinn Pálsson fyrrverandi formaður KKÍ.

Bikarinn mun heimsækja allar þátttökuþjóðirnir á Evrópumótinu og eftir að hafa verið í Lettlandi og Eistlandi er hann kominn hingað.



Bikarinn verður til sýnis í Höllinni í dag frá 17-21 og á morgun fimmtudag frá 15-21. Gefst almenningi þá kostur á að sjá gripinn og mynda sig með honum sem og lukkudýri mótsins Frenkie the Fireball.

Um bikarinn: The Nikolai Semashko Throphy
Bikarinn ef nefndur eftir Nikolai Semashko (1907 - 1976), sem var frá Sovétríkjunum, en hann var íþróttamálaráðherra Sovétríkjanna sálugu og varaformaður og formaður FIBA Europe á árunum 1960 til 1976.

Núverandi bikar er önnur útgáfan af Evrópubikarnum sem var notuð til ársins 1993, en það var þýski gullsmiðurinn Gunter Schoebel sem bjó til arftakan árið 1995.
Bikarinn er 23 cm há skál sem er 35 cm í þvermál efst. Hann er búinn til úr gulli og silfri skreyttur 24 eðalsteinum, jafnmörgum fjöldi liða á mótinu, og stendur á gegnheillri marmaraplötu. Bikarinn vegur svo alls 18 kg.

Frá árinu 1995 hafa hetjur eins og Vlade Divac, Aleksander Djordjevic, Dejan Bodiroga, Sarunas Jasikevicius, Theodoros Papaloukas, Andrei Kirilenko, Juan Carlos Navarro, Pau Gasol og Tony Parker meðal annars lyft bikarnum á loft sem Evrópumeistarar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá forkeppni Evrópumóts landsliða í Lugano í Sviss árið 1995.  Guðmundur Bragason, Sigfús Gizurarson og Herbert Arnarson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið