© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.6.2015 | 7:00 | Kristinn | Landslið
Axel hefur spilað þrjátíu landsleiki í röð
Axel fyrir miðju ásamt Hlyni og Ragnari


Axel Kárason er í íslenska landsliðinu á Smáþjóðaleikunum sem fara fram í Laugardalshöllinni í næstu viku alveg eins og hann hefur verið samfellt undanfarin þrjú ár.

Enginn annar leikmaður í íslenska liðinu á Smáþjóðaleikunum í ár hefur spilað jafnmarga leiki í röð án þess að missa úr landsleik.

Axel Kárason hefur nú spilað þrjátíu landsleiki í röð eða alla leikið íslenska liðsins síðan að Peter Öqvist tók við íslenska liðinu sumarið 2011 þegar liðið lék á NM sem fram fór í Sundsvall.

Axel hafði þá ekki verið valinn í landsliðið í sex ár eða síðan að hann var með á Norðurlandamótinu í Tampere í Finnlandi í ágúst 2006. Þá valdi Sigurður Ingimundarson hann í landsliðið og Axel spilaði sinn fyrsta landsleik á móti heimamönnum í Finnlandi 2. ágúst 2006.

Axel Kárason mun nú ekki bara spila fyrir Craig Pedersen með íslenska landsliðinu því Axel hefur gengið til liðs við Svendborg Rabbits, liðið sem Pedersen þjálfar í dönsku deildinni.

Axel Kárason hefur reyndar aðeins spilaði 8 af 34 landsleikjum sínum fyrir íslenska þjálfara því fyrir utan þessa fjóra fyrstu undir stjórn Sigurðar Ingimundarson þá hefur hann spilað landsleiki sína fyrir erlenda þjálfara nema fjóra leiki á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg þar sem að Pétur Már Sigurðsson og Arnar Guðjónsson stýrðu íslenska liðinu í forföllum Peter Öqvist.

Hlynur Bæringsson og Haukur Helgi Pálsson hafa aðeins misst af fjórum leikjum á þessum tíma en Haukur Helgi er ekki með á Smáþjóðaleikunum í ár vegna meiðsla.

Flestir leikir fyrir íslenska karlalandsliðið frá 2012:
Axel Kárason · 30
Hlynur Bæringsson · 26
Haukur Helgi Pálsson · 26
Logi Gunnarsson · 25
Pavel Ermolinskij · 24
Brynjar Þór Björnsson · 24
Ragnar Nathanaelsson · 19
Martin Hermannsson · 19
Jón Arnór Stefánsson · 19
Jakob Örn Sigurðarson · 19
Sigurður Gunnar Þorsteinsson · 17
Hörður Axel Vilhjálmsson · 15
Ægir Þór Steinarsson · 15

Landsleikir Axels Kárasonar fyrir einstaka þjálfara:
Peter Öqvist · 20
Craig Pedersen · 6
Sigurður Ingimundarson · 4
Pétur Már Sigurðsson · 4

Eins og fyrr segir er fyrsti leikurinn í kvöld en liðið spilar síðan við Lúxemborg á fimmtudeginum 4. júní (klukkan 19.30) og svo lokaleikinn sinn á móti Svartfjallalandi á laugardeginum 6. júní (klukkan 16.00).

Frítt er inn á alla viðburði leikanna og því áhorfendur hvattir til að fjölmenna og styðja íslenska landsliðið á leikunum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá keppni drengjalandsliðs Íslands í úrslitakeppni Evrópukeppninnar í Tyrklandi árið 1993.  Snyrtipinnarnir Arnþór Birgisson og Bergur Emilsson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið