© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.6.2015 | 7:00 | Kristinn
Craig fyrsti erlendi þjálfarinn í 26 ár á Smáþjóðaleikunum
Kanadamaðurinn Craig Pedersen mun stýra íslenska karlalandsliðunu á Smáþjóðaleikunum í næstu viku alveg eins og í Evrópukeppninni síðasta haust.

Það eru hinsvegar liðnir hátt í þrír áratugir síðan að íslenska karlalandsliðið spilaði á Smáþjóðaleikum undir stjórn erlends þjálfara.

Síðasti erlendi þjálfari liðsins á undan Craig Pedersen var Ungverjinn Laszlo Nemeth sem þjálfaði íslenska landsliðið á Smáþjóðaleikunum á Kýpur árið 1989.

Svíinn Peter Öqvist var þjálfari íslenska liðsins á síðustu Smáþjóðaleikum í Lúxemborg en hann átti ekki heimangengt á það mót og aðstoðarþjálfarar hans, Pétur Már Sigurðsson og Arnar Guðjónsson, stýrðu liðinu á leikunum. Pétur Már var þá þjálfarinn.

Arnar Guðjónsson er enn aðstoðarþjálfari íslenska liðsins og mun aðstoða Craig Pedersen á Smáþjóðaleikunum ásamt Finni Frey Stefánssyni, þjálfara Íslandsmeistara KR.

Íslenska liðið vann tvo af þremur leikjum sínum undir stjórn Laszlo Nemeth á Smáþjóðaleikunum á Kýpur fyrir 26 árum en varð að sætta sig við bronsverðlaunin þrátt fyrir sigra á bæði Möltu og Lúxemborg.

Fyrsti leikurinn tapaðist á móti Andorra þar sem íslenska liðið spilaði aðeins þremur dögum eftir að liðið spilaði fjóra leiki á fjórum dögum í Portúgal í undankeppni EM.

Craig Pedersen er níundi þjálfari íslenska karlalandsliðsins á Smáþjóðaleikum em Torfi Magnússon hefur bæði farið á flesta leika með liðið (3) sem og stýrt liðinu í flestum leikjum (13).

Flestir leikir þjálfara á Smáþjóðaleikum:
Torfi Magnússon · 13
Sigurður Ingimundarson · 10
Friðrik Ingi Rúnarsson · 10
Pétur Már Sigurðsson · 4
Jón Kr. Gíslason · 4
Friðrik Ragnarsson · 4
Laszlo Nemeth · 3
Einar Bollason · 3

Leikir Íslands undir stjórn Laszlo Nemeth á Smáþjóðaleikunum á Kýpur 1989:

4 stiga tap á móti Andorra (79-83)
 - Magnús Guðfinnsson 17 stig, Guðmundur Bragason 16 stig

11 stiga sigur á Möltu (94-83)
 - Teitur Örlygsson 22 stig, Valur Ingimundarson 21 stig

1 stigs sigur á Lúxemborg (98-97)
 - Teitur Örlygsson 18 stig, Tómas Holton 13 stig, Birgir Mikaelsson 13 stig

Gengi: 3 leikir (2 sigrar - 1 tap)
Uppskera: Bronsverðlaun

Fyrsti leikur íslensku strákanna á Smáþjóðaleikunum 2015 er miðvikudaginn 3. júní á móti Andorra í Laugardalshöllinni og hefst hann klukkan 19.30. Liðið spilar síðan við Lúxemborg á fimmtudeginum 4. júní (klukkan 19.30) og svo lokaleikinn sinn á móti Svartfjallalandi á laugardeginum 6. júní (klukkan 16.00).
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá keppni á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg árið 1995.  Anna María Sveinsdóttir í leik gegn Kýpur.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið