© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.6.2015 | 8:00 | Kristinn | Landslið
Þrjár í hópnum hafa spilað alla leikina frá því að landsliðið var endurvakið
Pálína, Helena og Gunnhildur
Ívar Ásgrímsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, er búinn að velja tólf manna hóp fyrir Smáþjóðaleikana sem fara fram í Laugardalshöllinni fyrstu vikuna í júní.

Þrír leikmenn í íslenska hópnum hafa ekki misst úr landsleik frá því að kvennalandsliðið var endurvakið fyrir þremur árum.

Þetta eru þær Helena Sverrisdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir sem hafa spilað alla þrettán leiki liðsins frá 2012 til 2014.

Tvær aðrar voru líka búnar að spila þessa þrettán leiki en það eru þær Hildur Sigurðardóttir og María Ben Erlingsdóttir sem eru ekki með að þessu sinni.

Hildur Sigurðardóttir hefur lagt körfuboltaskóna á hilluna og María Ben Erlingsdóttir er í barnseignarleyfi.

Helena Sverrisdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir hafa verið í byrjunarliðinu í öllum þrettán leikjunum en Gunnhildur Gunnarsdóttir kom inn af bekknum í þeim öllum.

Flestir leikir fyrir kvennalandsliðið frá 2012 til 2014:
Gunnhildur Gunnarsdóttir    13
Pálína Gunnlaugsdóttir    13
María Ben Erlingsdóttir    13
Helena Sverrisdóttir    13
Hildur Sigurðardóttir    13
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir    10
Kristrún Sigurjónsdóttir    9
Bryndís Guðmundsdóttir    9
Hildur Björg Kjartansdóttir    9

Flestir leikir í byrjunarliði kvennalandsliðsins frá 2012 til 2014:
Pálína Gunnlaugsdóttir    13
Helena Sverrisdóttir    13
Hildur Sigurðardóttir    12
Petrúnella Skúladóttir    7
María Ben Erlingsdóttir    7
Hildur Björg Kjartansdóttir    6
Bryndís Guðmundsdóttir    6

Fyrsti leikur íslensku stelpnanna á Smáþjóðaleikunum 2015 er þriðjudaginn 2. júní á móti Möltu í Laugardalshöllinni og hefst hann klukkan 19.30. Liðið spilar síðan við Mónakó á fimmtudeginum 4. júní (klukkan 17.00) og svo lokaleikinn sinn á móti Lúxemborg á laugardeginum 6. júní (klukkan 13.30).
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Mix mótið í körfubolta var haldið sunnudaginn 1. júlí 2007.  Veðrið lék við körfuboltamenn og konur og sáust mörg skemmtileg tilþrif.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið