© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
31.5.2015 | 20:30 | Kristinn | Landslið
Þrír gullverðlaunahafar í íslenska hópnum
Brynar Þór, Logi og Helgi Már á æfingu í dag
Á morgun verða Smáþjóðaleikarnir settir formlega en þeir fara fram hér á landi 1.-6. júní og eru þetta 16. leikarnir sem haldnir eru.

Það eru liðin átta ár síðan að íslenska karlalandsliðið vann gullverðlaun á Smáþjóðaleikunum en strákarnir okkar fengu síðast gull um hálsinn eftir körfuboltakeppnina á leikunum í Mónakó.

Íslenska liðið fékk gullið sitt þó ekki afhent strax eftir úrslitaleikinn í Mónakó í júní 2007 eins og venjan er því leikurinn leystist upp í lokin og var á endanum flautaður af eftir að Kýpverjar misstu stjórn á skapi sínu og slagsmál brutust út. 

Íslandi var dæmdur sigur í leiknum og vann íslenska liðið því alla fimm leiki sína á leikunun. Kýpur var fyrir þessa leika búið að vinna fimm Smáþjóðaleika í röð og íslenska liðið hafði endaði í öðru sætinu á þremur þeirra.

Íslenska liðið vann þarna fyrstu gullverðlaun sína í 24 ár eða síðan liðið vann gullið á Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.

Þrír leikmenn íslenska liðsins á Smáþjóðaleikunum í ár voru með þegar gullið vannst fyrir átta árum en það eru þeir Logi Gunnarsson, Helgi Már Magnússon og Brynjar Þór Björnsson. Hörður Axel Vilhjálmsson var líka í þessu liði og hann er enn að spila með landsliðinu en getur ekki verið með í Höllinni vegna meiðsla.

Logi var þriðji stigahæsti leikmaður íslenska liðsins fyrir átta árum á eftir þeim Brenton Birmingham og Páli Axel Vilbergssyni en Logi skoraði þá 15,0 stig að meðaltali í leik. Logi hitti meðal annars úr 21 af 23 vítum sínum sem gerir 91,3 prósent vítanýtingu.

Logi og Helgi Már Magnússon fengu skráðar á sig flestar stoðsendingar á mótinu, sjö hvor, og Helgi Már Magnússon varð annar í fráköstum á eftir Friðriki Stefánssyni en Helgi Már tók samtals 24 fráköst eða 4,8 í leik.

Stig íslenska liðsins á Smáþjóðaleikunum í Mónakó 2007:
Brenton Birmingham · 87
Páll Axel Vilbergsson · 80
Logi Gunnarsson  · 75
Helgi Már Magnússon · 49
Friðrik Stefánsson · 38
Magnús Þór Gunnarsson · 26
Hreggviður Magnússon  · 25
Brynjar Þór Björnsson · 23
Þorleifur Ólafsson · 12
Kristinn Jónasson · 11
Hörður Axel Vilhjálmsson · 6
Jóhann Árni Ólafsson · 4

Fyrsti leikur íslensku strákanna á Smáþjóðaleikunum 2015 er miðvikudaginn 3. júní á móti Andorra í Laugardalshöllinni og hefst hann klukkan 19.30. Liðið spilar síðan við Lúxemborg á fimmtudeginum 4. júní (klukkan 19.30) og svo lokaleikinn sinn á móti Svartfjallalandi á laugardeginum 6. júní (klukkan 16.00).
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Úrvalslið karla á Stjörnuleikshelgi KKÍ 13.desember 2008 sem fór fram að Ásvöllum í Hafnarfirði. Úrvalsliðið hafði sigur á Landsliði Íslands í leiknum 111-113.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið