© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.7.2004 | 14:13 | rg
Heimsmeistaramótið í Japan
FIBA hefur í samráði við heimamenn í Japan ákveðið í hvaða borgum Heimsmeistaramótið í körfuknattleik karla fer fram árið 2006. Riðlakeppnin mun fara fram í Hokkaido, Miyagi, Shizuoka og Hiroshima en úrslitaleikirnir verða leiknir í Saitama. Þetta er í 15. skipti sem mótið fer fram en aðeins í annað skipti sem það er haldið í Asíu en fyrir 28 árum var mótið haldið á Filipseyjum.
Ákveðið hefur verið að fjölga þátttökuþjóðunum úr 16 í 24 og skiptist það þannig milli heimsálfa að Evrópa sendir 6 þjóðir, Ameríka 5, Asía 3, Afríka 3, Eyjaálfa 2 auk heimamanna, Japana í þessu tilviki. Það verða því leiknir 80 leikir í Japan seinni hluta ágústmánaðar 2006.
Heimamenn í Japan hafa einungis þrisvar tekið þátt í heimsmeistaramóti og aldrei orðið ofar en í 11. sæti, í Uruguay árið 1967. Síðast voru þeir með í Grikklandi 1998 þar sem þeir enduðu í 14. sæti.
Júgóslavar eru núverandi heimsmeistarar en þeir leika undir merkjum Serbíu og Svartfjallalands nú um stundir.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Einar Matthíasson,leikmaður KFR, á fullri ferð með knöttinn að Hálogalandi.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið