© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.6.2004 | 9:49 | bl
Tíu stiga tap staðreynd
Belgía sigraði Ísland, 78-88, í vináttulandsleik þjóðanna í Borgarnesi í gærkvöld. Hart var tekist á í leiknum og alls voru dæmdar 53 villur á liðin, þar af tvær óíþróttamannslegar villur og tvær tæknivillur. Annar leikur þjóðanna verður í Keflavík í kvöld kl. 21:00.

Belgar hófu leikinn í gær af miklum krafti og skoraðu 9 fyrstu stigin. Okkar menn náðu að minnka muninn í tvö stig en tíu stigum munaði í lok fjórðungsins. Annar fjórðungur var kaflaskiptur. Ísland áttu fyrri hlutann, staðan 26-30 um hann miðjan, en 30-47 þegar flautað var til leikhlés. Mikil barátta einkenndi allan síðari hálfleik, íslenska liðið neitaði að gefast upp og með mikilli baráttu tókst því að minnka muninn í fjögur stig 69-73 um miðjan lokafjórðunginn. Lokatölur voru síðan 78-88 eins og fyrr greinir.

Nýliðinn Arnar Freyr Jónsson var stigahæstur í sínum fyrsta landsleik með 13 stig (3 stoðs.), Hlynur Bæringsson gerði 12 stig, (3/3 í 3ja stiga skotum, 5 fráköst), Helgi Magnússon 11, Magnús Þór Gunnarsson 10, Páll Axel Vilbergsson fyrirliði 9 (5 fráköst, 3 stoðs. 3 stolnir), Friðrik Stefánsson 8 (4 fráköst, 2 varin, 2 stoðs.), Fannar Ólafsson 7 og Jakob Sigurðarson 4, Páll Kristinsson 2 (3 fráköst, 3 stoðs.) og Sigurður Þorvaldsson 2 (6 fráköst).

Lárus Jónsson lék einnig sinn fyrsta landsleik en náði ekki að skora. Jón N. Hafsteinsson lék einnig í gær. Leikinn dæmdu þeir Rögnvaldur Hreiðarsson og Björgvin Rúnarsson.

Í kvöld mætast þjóðirnar kl. 21:00 í Keflavík. Búast má við hörkuleik, þar sem ekkert verður gefið eftir.


mt: Vígsluleikur nýja parketgólfsins í Borgarnesi að hefjast með dómarakasti.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Leikmenn úr A-landsliði kvenna ásamt Pétri Hrafni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra KKÍ.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið