© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.6.2004 | 11:41 | ss
Streetball-mót í Laugardal
Glímufélagið Ármann stendur fyrir fjölskyldu- og íþróttahátið í Laugardalnum laugardaginn 12.júní. Fjölmargt skemmtilegt verður á boðstólnum og verður m.a. haldið Streetball-mót, en mót af þessu tagi hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár.
Mótið hefst formlega kl. 11 á laugardagsmorgunn og er þátttökugjaldið 500 kr. á mann. Hægt er að skrá sig hér, en allar nánari upplýsingar má nálgast í síma 897-7320.

Eins og áður segir er Streeball-mótið hluti af fjölskyldu- og íþróttahátið Glímufélagsins Ármanns og í fréttatilkynningu félagsins segir m.a.:
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna, kynning á starfsemi félagsins en auk þess verða leiktæki og uppákomur fyrir börn og fullorðna og fólki gefinn kostur á að spreyta sig í hinum ýmsu íþróttum.
Með þessum degi viljum við tengja foreldra og börn við íþróttir og heilbrigðan félagsskap sem varir ævina út. Íþróttir eru kröftugasta forvörnin gegn ávana- og fíkniefnum og stuðla að bættri líðan og betri heilsu !
Allar íþróttir sem í boði eru hjá félaginu verða kynntar á skemmtilegan hátt með sýningum og gestum gefinn kostur á að spreyta sig.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið Hauka á leið til Akureyrar með leiguflugi árið 1983.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið