© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.6.2004 | 14:28 | bl
Fannar og Logi með körfuboltanámskeið
Dagana 14.-16. júní fer á stað körfuboltanámskeið í Reykjanesbæ.
Þetta námskeið er haldið af landsliðsmönnunum Loga Gunnarssyni atvinnumanni í Þýskalandi og Fannari Ólafssyni núverandi Íslandsmeistara með Keflavík í samstarfi við KKÍ.

Nú gefst ungum körfuknattleiksunnendum tækifæri að æfa undir stjórn lansliðs og atvinnumanna og fá leiðsögn um hvað þarf að gera til að ná langt í íþróttinni, einnig munu þekktir gestaþjálfarar heimsæka námskeiðið s.s. Sigurður Ingimundarson landsliðsþjálfari.

Námskeiðið er fyrir stelpur og stráka á aldrinum 9-18 ára og hefst mánudaginn 14.júní í Íþróttarhúsi Keflavíkur við Sunnubraut.
Krakkar á aldrinum 9-12 ára mæta klukkan 13:00 og 13 ára og eldri klukkan 16:00( hópunum verður skipt eftir aldri og getu). Verð er 3500.- kr fyrir alla þrjá dagan, veittur verður 10% systkinaafsláttur.

Skráning fer fram á fyrsta degi námskeiðsins eða á netfanginu korfunamskeid@visir.is

Einnig má þess geta að fleiri námskeið munum vera í sumar víðast hvar á landinu.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Einar Matthíasson leikmaður KFR tekur skot á körfuna.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið