© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.5.2004 | 10:53 | bl
Englendingar stefna á sigur
Englendingar stefna á toppsætið í B-deild Evrópukeppni U-16 ára landsliða drengja í Brighton í ágúst. Það gera eflaust margar þeirra níu þjóða sem mæta Englendingum í Brighton einnig. Íslenska drengjalandsliðið, undir stjórn Benedikts Guðmundssonar, tekur þátt í mótinu.

Þátttökulöndin í Brighton verða, England, Makedónía, Tékkland, Ísland, Ungverjaland, Austurríki, Írland, Svíþjóð, Finnland og Holland.

Upphaflega átti mótið að fara fram í Manchester, en var síðan fært til Brighton. Þar er frábær aðstaða fyrir körfubolta, en leikið verður á heimavelli Brighton Bears sem leikur í ensku úrvalsdeildinni.
Alls verða fimm leikir á dag í mótinu sem stendur frá 6.-15. ágúst.

Efsta liðið í mótinu kemst upp í A-deild Evrópukeppninnar sem og efsta liðið í hinum riðli B-deildarinnar. Vegna fjölda þátttökuþjóða í keppninni varð að skipta liðunum í B-deildinni upp í tvo riðla. Í hinum riðlinum, sem fram fer í Veliko Tarnovo í Búlgaríu leika: Portúgal, Úkraína, Kýpur, Rúmenía, Eistland, Hvíta-Rússland, Albanía, Bosnía & Herzegóvína og Búlgaría
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Unglingalandslið Íslands sem tók þátt í Evrópukeppninni í Antalya í Tyrklandi árið 1976. Frá vinstri: Steinn Sveinsson, fararstjóri, Örn Þórisson, Fram, Birgir Thorlacius, Fram, Þorsteinn Bjarnason, Keflavík, Ómar Þráinsson, Fram, Þórir Einarsson, Fram, Pétur Guðmundsson, Val, Þorvaldur Geirsson, Fram, Óskar Baldursson, Breiðabliki, Erlendur Markússon, ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson, Val, Sigurjón Ingvarsson, Fram og Gunnar Gunnarsson, þjálfari.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið