© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
29.4.2004 | 16:33 | bl
Stúlknalandsliðið með tvö verkefni í sumar
Stúlknalandsliðið U-16 er skipað stúlkum fæddum 1988 og síðar. Liðið fer á NM í maí og verður síðan fyrsta kvennalandslið íslands til að taka þátt í Evrópukeppni þegar liðið keppir á EM stúlkna í Tallin í lok júlí og byrjun ágúst.

Þjálfari liðsins er Henning Henningsson. Undirbúningur liðsins hefur staðið í eitt ár. Í dag hefur Henning valið eftirtalda leikmenn sem mynda hópinn sem tekur þát í Norðurlandamóti í Svíþjóð 19. – 23. maí og í Evrópukeppni landsliða sem fram fer í Tallin í Eistlandi 30. júlí – 8. ágúst.

Verður það í fyrsta sinn sem Ísland sendir kvennalandslið til þátttöku í Evrópukeppni landsliða og er það til marks um það hversu miklar framfarir hafa orðið í körfuknattleik kvenna að KKÍ telur þessar stúlkur eiga fullt erindi inn í Evrópukeppnina og í framtíðinni er áætlað að yngri landslið kvenna taki þátt í sama prógrami og yngri landslið karla, þ.e. taki þátt í Evrópukeppi landsliða en ekki í “Promotion Cup” eins og tíðkast hefur þar sem Ísland hefur verið að taka þátt með smærri þjóðum Evrópu.

Bára Fanney Hálfdánardóttir Haukar
Bryndís Guðmundsdótttir Keflavík
Guðrún Harpa Guðmundsdóttir Keflavík
Helena Sverrisdóttir Haukar
Helga Einarsdóttir Tindastól
Hrönn Þorgrímsdóttir Keflavík
Ingibjörg Skúladóttir UMF.Hrunamanna
Ingibjörg Vilbergsdóttir Njarðvík
Linda Stefanía Ásgeirsdóttir Keflavík
María Ben Erlingsdóttir Keflavík
Ragnheiður Theodórsdóttir Kelfavík
Sara Dögg Ólafsdóttir Haukar
Bára Bragadóttir Keflavík
Margrét Kara Sturludóttir Njarðvík

Þjálfari: Henning Henningsson
Aðst.þjálfari: Jón Halldór Eðvaldsson


mt: Helena Sverrisdóttir úr Haukum á 16 landsleiki að baki með yngri landsliðum kvenna, auk 3 A-landsleikja.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Miðherjarnir Fannar Ólafsson, KR, og Friðrik Stefánsson, Njarðvík, fallast í faðma að loknum deildarleik í Ljónagryfjunni 19. janúar 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið