© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.4.2004 | 16:45 | bl
KKÍ samdi við Shell, Errea og Icelandair
KKÍ hélt blaðamannafund í dag þar sem samningar við þrjú fyrirtæki voru kynntur. Fyrirtækin verða aðalstuðningsaðilar landsliðanna, sem verða á faraldsfæti í sumar. Fyrirtækin sem um ræðir eru Skeljungur, Icelandair og Safalinn, umboðsaðili Errea-íþróttafatnaðarins, en landslið Íslands munu áfram leika í fatnaði frá Errea eins og í fyrra.

Þessir samningar eru KKÍ mikils virði og án þeirra hefði ekki verið hægt að halda úti því metnaðarfulla starfi sem rekið verður í sumar.
Alls verða 6 landslið á vegum KKÍ sem æfa og keppa á hinum ýmsu mótum í sumar.

Alls verða yfir 100 körfuknattleiksmenn og konur á landsliðsæfingum með hinum ýmsu landsliðum nú í sumar. Liðin munu alls leika 60 landsleiki sem er metfjöldi leikja sem leikinn hefur verið á vegum KKÍ á einu sumri. Ljóst er að enn fleiri leikir verða leiknir á næsta ári þegar öll yngri liðin munu taka þátt í Evrópukeppni landsliða.

A-landslið karla mun leika alls 11 leiki í sumar til undirbúnings 3 leikjum í Evrópukeppninni eða 14 leiki alls.

A-landslið kvenna mun leika alls 12 leiki í sumar

U-18 karla mun leika 4 landsleiki á Norðurlandamóti í sumar.

U-18 kvenna mun leika 4 landsleiki á Norðurlandamóti í sumar.

U-16 karla mun leika 4 landsleiki á Norðurlandamóti í sumar og 9 landsleiki í Evrópukeppni.

U-16 kvenna mun leika 4 landsleiki á Norðurlandamóti í sumar og 9 landsleiki í Evrópukeppni.

Þjálfarar landsliðanna hafa valið æfingahópa og verða nöfn þeirra leikmanna sem valdir hafa verið birt hér á vefnum á morgun.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð unglingalandsliðs kvenna á mót í Nicosiu á Kýpur árið 1999.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið