© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.10.2000 | 22:38 | BL
Óðinn tryggði Þór sigur á KR
Óðinn Ásgeirsson var hetja Þórsara sem sigruðu Íslandsmeistara KR í KR-húsinu í kvöld 78-79. Óðinn setti niður þriggja stiga skot þegar tvær sekúndur voru eftir af leiktímanum og var það í eina skiptið í leiknum sem norðanmenn komust yfir.

KR-ingar voru 13 stigum yfir í leikhléi, 51-38 og forysta þeirra var 10 stig þegar fjórði leikhluti hófst. Sigur KR-inga virtist vera í höfn en Þórsarar neituðu að gefast upp. Þeir minnkuðu muninn jafnt og þétt og var það einkum góðum varnarleik að þakka. Þegar um tvær mínútur voru eftir minnkuðu gestirnir muninn í tvö stig. Munurinn var einnig tvö stig þegar Þórsarar lögðu af stað í síðustu sóknina. Eftir misheppnað körfuskot Þórs náðu KR-ingar boltanum, en misstu hann strax aftur. Sigurður Sigurðarson gaf boltann á Óðin sem átti ekki annars úrkosta en að skjóta þar sem leiktíminn var að renna út. Boltinn fór í körfuna og eins stigs sigur Þórs var í höfn. Fögnuður þeirra var gífurlegur, en vonbrigði KR-inga að sama skapi mikil. KR-ingar eru því enn án stiga í Epson-deildinni eins og KFÍ.

UMFN vann góðan sigur á Hamri 96-71. Njarðvíkingar tryggðu sér sigurinn í þriðja leikhluta er þeir settu sjö þriggja stiga körfur, sem að sjálfsögðu er met.

Liðin tvö sem voru taplaus fyrir leiki kvöldsins, UMFG og Keflavík mættust í Grindavík. Gestirnir fóru með sigur af hólmi 83-92 og tróna einir á toppi deildarinnar. Haukar unnu Skallagrím á Ásvöllum 95-75 og Tindastóll sigraði ÍR á Króknum 81-763. Fyrr í dag vann Valur sinn fyrsta sigur í deildinni er þeir lögðu KFÍ 92-82.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hörður Axel Vilhjálmsson sækir að körfunni í úrslitaleik 18 ára landsliða karla á NM 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið