© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
26.3.2004 | 14:33 | bl
Tvennir meistarar verða krýndir um helgina
Íslandsmótinu í 8. flokki karla lýkur í kvöld með fjórum leikjum í Smáranum í Kópavogi. Síðasti leikur mótsins verður kl. 20:15 en hann er á milli Breiðabliks og KR en þessi lið eru bæði taplaus í mótinu til þessa.

Keppni í minnibolta kvenna lýkur einnig um helgina með úrslitamóti sem fram fer í Hveragerði. Á suðurlandi fer einnig fram úrslitakeppni 2. deild karla um helgina, eins og áður hefur komið fram hér á vefnum.

Í Intersport-deildinni verða tvær viðureignir milli UMFG og Keflavíkur. Í kvöld mætast liðin í Grindavík kl.19:15 og á sunnudaginn í Keflavík kl. 17:00. Báðir leikirnir verða sýndir beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Staðan í viðureigninni er 1-1 og það má finna ítarlegt yfirlit yfir tölfræði einvígisins til þessa hér. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst í úrslitin gegn Snæfelli en sjá hér má hvernig einvígi Snæfells og Njarðvíkur þróaðist en Snæfellingar unnu alla þrjá leikina og eru taplausir í úrslitakeppninni til þessa.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993. Valur Ingimundarson í leik gegn Möltu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið