© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.3.2004 | 16:16 | bl
Leikið í Vík og Kirkjubæjarklaustri um helgina
Úrslitakeppni 2. deild karla fer fram á suðurlandi um næstu helgi. Í Vík fer fram A-riðillinn, en í honum eru Drangur, HK, Hörður og Reynir S. í B- riðlinum sem fram fer á Kirkjubæjarklaustri leika ÍA, ÍV, Grundarfj./Reynir H. og Dalvík.

Keppnin hefst kl. 19:00 annað kvöld með riðlakeppni. Henni líkur síðdegis á laugardag. Á sunnudagsmorgun verða undanúrslit og leikið um 7. sætið og 5. sætið. Síðdegis verður síðan leikurinn um 3. sætið og keppninni líkur með úrslitaleik í Vík kl. 16:00. Liðin sem verða í tveimur efstu sætum keppninnar færast upp í 1. deild að ári.

Mikil tilhlökkun ríkir á báðum þessum stöðum og hefur undirbúningur staðið yfir í nokkra mánuði. Hótel og veitingastaðir á svæðinu hafa sent þátttökuliðunum tilboð í mat og gistingu og gert er ráð fyrir að mikil stemmning verði á suðurlandi á meðan á keppninni stendur.

Á Kirkjubæjarklaustri er glænýtt íþróttahús sem ekki hefur áður verið notað fyrir leiki á Íslandsmóti. Í Vík er einnig nýtt íþróttahús, en það var tekið í notkun sl. haust. Mikill hugur er í heimamönnum að standa vel að framkvæmd keppninnar og ekki síður að þeirra lið, Drangur, velgi andstæðingum sínum vel undir uggum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Eftir rúman áratug í meistaraflokki Keflavíkur ákvað Gunnar Stefánsson að söðla um haustið 2006.  Hann lék fyrri hluta tímabilsins með KR og skipti síðan yfir í Hauka.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið