© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
10.3.2004 | 14:25 | bl
Bikarmeistarar Vals í 10. flokki karla
Efri röð frá vinstri: Ágúst Jensson aðstoðarþjálfari, Hólmgrímur Hólmgrímsson, Róbert Æ Hrafnsson, Gústaf Gústafsson,Gissur Jón Helguson, Hjalti Friðriksson, Haraldur Valdimarsson, Sævaldur Bjarnason þjálfari (Katla Dögg Sævaldsdóttir)
Neðri Röð frá vinstri: Kai Fletcher, Ólafur Stefánsson, Björn Júlíusson, Arnór Þrastarson, Baldur Eiríksson, Páll Fannar Helgason.

Valsmenn urðu fyrstu bikarmeistarar dagsins þegar þeir unnu ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Njarðvíkur, 52-45. Valsmenn lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik sem liðið vann 35-24 og hitti þá úr öllum fimm þriggja stiga skotum sínum og átti 13 stoðsendingar á bak við 15 körfur. Maður leiksins var valinn fyrirliði liðsins, Hörður Hreiðarsson sem skoraði 10 stig, tók 20 fráköst, varði 6 skot og átti 5 stoðsendingar. Gissur Helguson átti einnig mjög góðan leik, skoraði 21 stig, tók 6 fráköst og átti 4 stoðsendingar. Gissur skoraði 17 stiga sinna í fyrri hálfleik þegar að hann hitti úr 7 af 12 skotum sínum og öllum þremur skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. Páll Fannar Helgason (9 stig) og Gústaf Gústafsson (8 stig, 5 frák., 4 stoðs.) voru einnig atkvæðamiklir. Hjá Njarðvík skoraði Hjörtur Hrafn Einarsson 24 stig, tók 10 fráköst og átti 5 stoðsendingar, Ragnar Ólafsson var með 12 stig og Elías Kristjánsson bætti við 7 stigum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ísfirðingarnir Þórir Guðmundsson og Sigurður Þorsteinsson urðu Norðurlandameistarar með U16 á Norðurlandamótinu í Solna í Svíþjóð árið 2004. Þórir leikur nú með mfl. KFÍ og Sigurður með mfl. Keflavíkur og íslenska landsliðinu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið