© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.3.2004 | 11:39 | bl
Bikarmeistarar Fjölnis í unglingaflokki karla
Efri röð frá vinstri: Ragnar Torfason, þjálfari, Páll Briem aðstoðarþjálfari, Bogi Hauksson, Hilmar Björn Harðarson, Guðni Valentínusson, Pálmar Ragnarsson, Hjalti Þór Vilhjálmsson, fyrirliði.
Neðri röð frá vinstri: Hörður Axel Vilhjálmsson, Magnús Pálsson, Haraldur Níelsson, Tryggvi Pálsson og Brynjar Þór Kristófersson.

Fjölnir varð eina félagið sem vann tvo bikara þessa helgi eftir að unglingaflokkur félagsins vann Grindavík, 84-75 í síðasta bikarúrslitaleik dagsins og helgarinnar. Grindavík hafði reyndar yfir, 66-70, þegar 3 mínútur og 45 sekúndur voru eftir en Ragnar Torfason, þjálfari liðsins, tók þá leikhlé og í framhaldinu skoraði Fjölnisliðið 17 stig í röð og hélt Grindvíkingum stigalausum fram á lokasekúndur leiksins. Fjölnir vann þessar 3 mínútur og 45 sekúndur 18-5 og leikinn því með 9 stigum.
Fjölnir hafði yfirhöndina mest allan leikinn, leiddi með einu stig eftir 1. leikhluta, 17-16, og með 8 stigum í hálfleik, 45-37. Grindavík hafði þó náð að minnka muninn í 2 stig, 56-54, fyrir síðasta leikhlutann þar sem þeir síðan komust 4 stigum yfir. Fyrirliði Fjölnisliðsins, Hjalti Þór Vilhjálmsson var valinn maður leiksins en hann skoraði 21 stig, tók 13 fráköst, gaf 6 stoðsendingar og stal 6 boltum. Pálmar Ragnarsson átti einnig mjög góðan leik, skoraði 27 stig og tók 9 fráköst og þá var Magnús Pálsson með 12 stig auk þess að taka 8 fráköst og gefa 7 stoðsendingar. Brynjar Þór Kristófersson, kórónaði daginn með því að skora 8 stig, taka 7 fráköst og stela 4 boltum en fyrr um daginn hafði hann orðið bikarmeistari með 11. flokki og varð því eini tvöfaldi bikarmeistari helgarinnar. Hjá Grindavík var Jóhann Þór Ólafsson með 16 stig og 5 stoðsendingar, bróðir hans, Þorleifur Ólafsson, bætti við 14 stigum, 11 fráköstum og 4 stolnum boltum, Ármann Örn Vilbergsson var með 13 stig og 4 stolna bolta. Eggert Daði Pálsson var svo með 5 stolna og 13 stig en þurfti 21 skot til að skora þessi 13 stig. Þá var Davíð Páll Hermannsson með 10 stig auk þess að taka 8 fráköst og gefa 5 stoðsendingar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hér er Oddur Birnir Pétursson að setja tvö af 16 stigum sínum í leik með Íslenska U-16 ára liðinu á Norðurlandamótinu í Solna í Svíþjóð 2009. Þorsteinn Ragnarsson fylgist með liðsfélaga sínum. Íslenska liðið atti kappi við það norska í þessum leik og hafði betur 89-55.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið