© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
8.3.2004 | 21:28 | bl
Bikarmeistar UMFG í 9. flokki kvenna
Neðri röð frá vinstri: Páll Axel Vilbergsson, Alma Garðarsdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir, Anna Þórunn Guðmundsdóttir, Ingibjörg Jakobsdóttir, Lilja Sigmarsdóttir og Sara Sigurðardóttir.
Efri röð frá vinstri: Jenný Óskarsdóttir, Íris Sverrisdóttir, Kristín Karlsdóttir, Berglind Anna Magnúsdóttir fyrirliði og Ingey Arna Sigurðardóttir.

Grindavík vann 34 stiga sigur á Kormáki, 54-20 í bikarúrslitaleik 9. flokks kvenna. Kormákur hafði yfir 12-11 eftir mínútna leik en þá tók Grindavíkurliðið mikinn sprett, skoraði 17 af síðustu 19 stigum hálfleiksins og leiddi með 15 stigum í leikhléi, 28-13. Grindavík vann síðan seinni hálfleikinn, 26-7, og leikinn því örugglega með 34 stigum. Kormáksliðið vakti þó mikla athygli enda baráttuglaðar stelpur sem höfðu gaman af leiknum og voru líka dyggilega studdar á pöllunum. Íris Sverrisdóttir var valinn maður leiksins en hún skoraði sjö stigum meira en allt lið Kormákurs til samans (27 stig), auk þess að stela 6 boltum. Alma Rut Garðarsdóttir bætti við 8 stigum, 3 stolnum boltum og 3 stoðsendingum, Ingey Sigurðardóttir var með 6 stig, 7 fráköst og 5 stolna bolta og fyrirliðinn Berglind Anna Magnúsdóttir var með 5 stig og 14 fráköst, þar af 9 þeirra í sókn. Hjá Kormáki skoruðu þær Freydís Jóna Guðjónsdóttir og Guðrún Gróa Þorstensdóttir fimm stig hvor, Freydís var með 5 fráköst, 4 varin skot og 3 stoðsendingar að auki en Guðrún Gróa tók 18 fráköst og stal 5 boltum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð A-landsliðs karla til Sarajevo í Bosníu v/þáttöku í undanúrslitakeppni Evrópumótsins árið 1998.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið