© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
8.3.2004 | 18:24 | bl
Bikarmeistarar KR í drengjaflokki
Efri röð frá vinstri: Ellert Arnarson, Oddur Finnsson, Sigfús Kr. Gunnlaugsson, Eldur Ólafsson, Finnur A. Magnússon, Óðinn Guðmundsson og Arnar Steinn Ólafsson.
Neðri röð frá vinstri: Herbert S. Arnarsson þjálfari, Birkir Veigarsson, Brynjar Björnsson, Hörður Harðarson, Friðrik Sigurðarson, Grétar Örn Guðmundsson, Jens Guðmundsson og Gylfi Björnsson.

KR varð bikarmeistari í drengjaflokki eftir sannfærandi sigur á Njarðvík, 81-65, í síðasta bikarúrslitaleik dagsins. KR-ingar spiluðu grimma en góða vörn sem kostaði þá reyndar 30 villur en lamaði jafnframt sóknarleik Njarðvíkinga sem voru fyrir vikið á eftir þeim allan leikinn. Njarðvíkingar skoruðu 62% stiga sinna í fyrri hálfleik af vítalínunni (18 af 29) og voru þá komnir 13 stigum undir, 44-29. Munurinn jókst síðan í seinni hálfleik og KR vann að lokum með 16 stigum.
Finnur Atli Magnússon var valinn maður leiksins en hann var með 21 stig, 14 fráköst, 6 varin skot og 4 stoðsendingar þrátt fyrir að spila aðeins í 29 mínútur. Grétar Örn Guðmundsson bætti síðan við 16 stigum, 10 fráköstum og 4 stolnum boltum, Brynjar Þór Björnsson skoraði 10 stig, tók 6 fráköst og varði 3 skot, Eldur Ólafsson var með 9 stig, 12 fráköst og 5 stolna og Sigfús Gunnlaugsson skoraði 8 stig og gaf 8 stoðsendingar. Hjá Njarðvík var Helgi Már Guðbjartsson með 18 stig, 10 fráköst, 6 stolna bolta og 6 varin skot, Jónas Ingason bætti við 16 stigum og 10 fráköstum og Kristján Sigurðsson skoraði 12 stig og tók 9 fráköst.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Helena Sverrisdóttir leitar færis gegn Norðmönnum í landsleik þjóðanna 16. september 2006 í Reykjanesbæ.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið