© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.3.2004 | 18:11 | phs
Tindastóll í vandræðum
Eftirlitsnefnd KKÍ með framkvæmd reglna um Intersportdeildina í körfuknattleik hefur úrskurðað að Tindastóll geti ekki endað ofar í Intersportdeildinni en lið sem er með jafnmörg stig og þeir. Þrátt fyrir að innbyrðis viðureignir séu liðinu hagstæðar þá lendi þeir neðar í töfluröðinni. Það er því ljóst að Tindastóll getur ekki náð 4. sætinu af Njarðvík þrátt fyrir að liðið vinni leik liðanna á morgun og sé þar með með hagstæðara vinningshlutfall en jafn mörg stig í deildinni. Enn fremur á liðið það á hættu að falla niður í 6 sæti endi liðið með jafn mörg stig og Haukar í 5 - 6 sæti, þrátt fyrir að liðið hafi betur í innbyrðisviðureignum félaganna.

Meðfylgjandi er grein sú sem eftirlitsnefndin úrskurðaði eftir. Geta áhugasamir séð alla reglugerðina.

4.2. Fari félag fram úr launaþaki skv. greinum 2.4., 2.5., 2.6., 2.7., 2.8 og 2.10. skulu eftirfarandi viðurlög eiga við:

4.2.1. Fyrir fyrsta brot skal félagið greiða allt að kr. 100.000,- í sekt til KKÍ og allt að fjögur stig skulu dregin af liðinu. Endi brotlega liðið með jafn mörg stig og annað skal það brotlega teljast neðar í töflunni og innbyrðis viðureignir ekki skipta máli.

4.2.2. Við gróft eða ítrekað brot á sama keppnistímabili skal heimilt að draga stig af félaginu, vísa því úr deildinni og jafnframt að sekta félagið um allt að kr. 500.000,- Sé félagi vísað úr deildinni skal það taka sæti í 1. deild í stað næst neðsta liðs úrvalsdeildar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Evrópukeppni U-20 landsliða í Evora í Portúgal árið 1993.  Þjálfarar liðsins þeir Friðrik Ingi Rúnarsson og Torfi Magnússon.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið