© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.3.2004 | 13:23 | bl
BSC deildarmeistarar - Jakob í úrvalsliðið
Birmingham Southern College tryggði sér um helgina meistaratitilinn í Big South deild 1. deildar bandarísku háskólameistarakeppninnar á sínu fyrsta ári sem fullgildur þátttakandi í deildinni. BSC sigraði VMI-skólann á laugardaginn 67-55, en leikurinn fór fram á heimavelli "Panthers" í Birmingham Alabama.

Jakob Sigurðarson landsliðsmaður skoraði 12 stig í leiknum og var með 6 stoðsendingar á 33 mínútum. Helgi Margeirsson lék í 11 mínútur og var með 3 fráköst.

Fyrir leikinn vantaði Jakob aðeins 4 stig uppá að verða 17. leikmaðurinn í sögu skólans til að skora 1.000 stig eða fleiri á ferli sínum í skólanum. Jakob var síðan valinn í fimm manna úrvalslið deildarinnar. Hann var með besta vítanýtingu allra leikmanna í deildinni (86,6%), varð í 2. sæti í nýtingu í 3ja stiga skotum (48,5%) og skoruðum 3ja stiga körfum (2,37) og í 5. sæti í stigaskori með 14,7 stig að meðaltali í leik.

Þá var þjálfari BSC, Duane Rebould, var valinn þjálfari ársins í deildinni. Þess má geta að Rebould hélt þjálfaranámskeið hér á landi fyrir nokkrum árum.

Um helgina tapaði Catawba, skóli Helga Magnússonar landsliðsmanns fyrir Carson-Newman á útivelli 56-87. Helgi skoraði 4 stig og var með 5 fráköst á 23 mínútum í leiknum
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hlynur Bæringsson áritar plakat eftir sigurleik á Dönum í Laugardalshöll 77:71 þann 10. september 2008
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið