© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
26.2.2004 | 12:56 | bl
Jakob með 31 stig í sigri Birmingham
Jakob Sigurðarson landsliðsmaður skoraði 31 stig og tók 6 fráköst á 33 mínútum fyrir Birmingham Soouthern College í 84-71 sigri gegn Radford í gærkvöldi í Big South-deild 1. deildar bandarísku háskólakeppninnar. Með sigrinum komst BSC aftur í efsta sæti deildarinnar. Leikurinn fór fram á heimavelli BSC, Billa Battle Coliseum að viðstöddum rúmlega eitt þúsund áhorfendum.

Jakob átti mjög góðan leik, var kominn með 20 stig í hálfleik, en þá var BSC 41-36 yfir. Hann var með mjög góða nýtingu í leiknum, en hann hitti úr 10 af 15 skotum sínum, þar af 5 af 7 frá þriggja stiga
línunni. Þá var hann með 6 víti niður af 10. Hefði hann hitt úr öllum vítaskotum sínum í leiknum hefði hann orðinn 17. leikmaðurinn í sögu BSC til að skora 1.000 stig eða fleiri á ferlinum í skólanum. Stigin 31 eru þó það mesta sem Jakob hefur skorað fyrir BSC í einum leik til þessa og væntanlega fer hann yfir 1.000 stiga markið í næsta leik.

Helgi Freyr Margeirsson var með 3 stig og 1 stoðsendingu á 13 mínútum í leiknum.

BSC er nú með 19 sigra og 7 töp í það heila á keppnistímabilinu og 11 sigra og 4 töp í efsta sæti Big South-deildarinnar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jón Steinar Sölvason, leikmaður Hauka, í varnarstöðu í leik gegn Hamri á úrslitamóti 8. flokks karla vorið 2006. Fjölnir stíð uppi sem sigurvegari í mótinu og því Íslandsmeistari.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið