© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
23.2.2004 | 14:23 | bl
Ívar Webster orðinn aðstoðarþjálfari í háskóla
Dacarsta Webster, bestur þekktur sem Ívar hér á Íslandi, er orðinn aðstoðarþjálfari í Wilmington College í Delawere í Bandaríkjunum. Webster snéri aftur til Bandaríkjanna árið 2000 eftir 20 ára feril sem leikmaður og þjálfari hér á landi.

Webster lék með mörgum félögum hér á landi, en þekktastur er fyrir að hafa leikið með Haukum, ma. árið sem liðið vann Íslandsmeistaratitilinn. Ívar varð íslenskur ríkisborgar og í kjölfarið varð hann fyrsti leikmaðurinn af erlendum uppruna og fyrsti blökkumaðurinn, til að leika fyrir íslenska landsliðið. Eftir að hann snéri til Bandaríkjanna gerðist hann þjálfari Red Lion Christian Academy miðskólans í Bear Delawere.

Á háskólaárum sínum lék Webster með Indiana State ásamt Larry Bird, en þeir mættu Magic Johnson og félögum í Michigan State í úrslitaleik NCAA-keppninnar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kjartan Kjartansson, leikmaður Stjörnunnar, bíður þess að fá fréttir úr viðureign Þórs og Snæfells á lokadegi Iceland Express-deildar karla 2008 en leiknum seinkaði um nokkrar mínútur. Með sigri Snæfells hefðu Stjörnumenn farið í úrslitakeppnina í stað Þórs. Þórsarar unnu Snæfellinga og mættu Keflvíkingum í úrslitakeppninni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið