© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.2.2004 | 14:15 | phs
NBA ferð með Icelandair
Icelandair stendur fyrir ferð á til Minnesota 4. - 8. mars næstkomandi þar sem körfuknattleiksáhugamönnum gefst m.a. tækifæri til að sjá leik í NBA - deildinni. Fararstjóri verður enginn annar en Pétur Guðmundsson fyrrum leikmaður í NBA deildinni. Farið verður á leik Minnesota Timberwolves og Houston Rockets á föstudeginum. Minnesota er með hörkulið og á toppnum í sínum riðli og í liði Houston er All Star miðherjinn frá Kína Yao Ming.
Á laugardeginum gefst svo tækifæri til að sjá leik í háskólaboltanum á milli University of Minnesota og Penn State University, en þeir sem til þekkja segja stemminguna í háskólaboltanum engu líka. Icelandair hefur tryggt góða miða á báða viðburðina.
Verðinu er stillt í hóf eða aðeins kr. 54.950 á mann í tvíbýli og er innifalið flug, gisting í 4 nætur, rútuferðir, miði á leikina og fararstjórn Péturs Guðmundssonar sem er öllum hnútum kunnugur.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Keflavík · Íslandsmeistarar í Stúlknaflokki 2009
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið